Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 27. apríl 2017 13:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kvennalið Grindavíkur semur við þrjá leikmenn
Grindavík er nýliði í Pepsi-deild kvenna.
Grindavík er nýliði í Pepsi-deild kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvennalið Grindavíkur var að semja við þrjá leikmenn. Grindavík er nýliði í Pepsi-deild kvenna og mætir með sterkt lið til leiks.

Anna Þórunn Guðmundsdóttir er fyrirliði Grindavíkur. Hún er uppalin hjá félaginu og á að baki fjölda leikja í gula búningnum.

Hún framlengdi samning sinn ásamt Lindu Eshun. Eshun kemur frá Gana, en hún spilaði áður með Víkingi Ólafsvík hér á landi.

Þá hefur Grindavík fengið Berglindi Ósk Kristjánsdóttur frá Völsungi. Berglind hefur verið að æfa með Grindavík í vetur.

„Bjóðum við hana velkomna og óskum þeim öllum þremur góðs gengis í sumar," segir á Facebook-síðu Grindavíkur.

Grindavík er spáð sjöunda sætinu í Pepsi-deild kvenna af Fótbolta.net, en þær leika gegn Fylki í fyrstu umferð í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner