Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fim 27. apríl 2017 16:30
Magnús Már Einarsson
Liverpool vill fá Sessegnon
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur áhuga á vinstri bakverðinum efnilega Ryan Sessegnon hjá Fulham. Sky Sports greinir frá.

Hinn 16 ára gamli Sessegnon hefur slegið í gegn í Championship deildinni með Fulham í vetur.

Mörg stórlið hafa fylgst með honum og samkvæmt frétt Sky Sports hefur Liverpool mikinn áhuga.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, er að skoða kosti til að styrkja hópinn í sumar.

Alexandre Lacazette, framherji Lyon, og Naby Keita, miðjumaður RB Leipzig, eru einnig sagðir á óskalista Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner