Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 27. maí 2018 11:30
Ingólfur Stefánsson
Ronaldo vill láta skíra Meistaradeildina eftir sér
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo stakk upp á því að Meistaradeild Evrópu yrði skírð eftir honum vegna frábærs árangurs hans í keppninni.

Þessi 33 ára Portúgali skoraði 15 mörk í Meistaradeildinni fyrir Real Madrid í vetur þegar liðið vann titilinn 3. árið í röð.

Hann hefur skorað fleiri mörk í keppninni, 120, en nokkur annar leikmaður í sögunni.

Ronaldo skoraði ekki í úrslitaleiknum gegn Liverpool og fréttamenn spurðu hann hvort hann væri vonsvikinn með það sagði hann:

„Afhverju ætti ég að vera vonsvikinn? Kannski ættu þeir að breyta nafninu á Meistaradeildinni í Meistaradeild CR7. Hver er búinn að skora mest og vinna flestu titlana?"

Ronaldogaf það einnig í skyn eftir leikinn í gær að hann gæti verið á förum frá Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner