Juventus hafði betur gegn Napoli þegar liðin mættust í fyrri leik sínum í undanúrslitum ítalska bikarsins í kvöld.
Napoli byrjaði reyndar betur og komst yfir með marki frá Jose Maria Callejon á 36. mínútu leiksins.
Þannig var staðan í hálfleik en þegar einungis tvær mínútur voru liðnar af seinni hálfleik fékk Juventus vítaspyrnu sem Paulo Dybala skoraði úr.
Á 64. mínútu komst Juventus yfir þegar Gonzalo Higuain skoraði og einungis fimm mínútum síðar skoraði Dybala aftur af vítapunktinum.
Lokatölur því 3-1 en seinni leikur liðanna fer ekki fram fyrr en 5. apríl.
Í hinni undanúrslitaviðureigninni mætast Roma og Lazio í fyrri leik sínum á morgun.
Athugasemdir