Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fim 28. apríl 2016 08:00
Arnar Geir Halldórsson
Saul: Líklega besta mark sem ég hef skorað
Saul fagnar marki sínu í gær
Saul fagnar marki sínu í gær
Mynd: Getty Images
Spænski miðjumaðurinn Saul Niguez var maður leiksins þegar Atletico Madrid vann 1-0 sigur á Bayern Munchen í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi.

Saul gerði eina mark leiksins eftir tíu mínútna leik og var það einkar laglegt.

„Ég kom mér framhjá tveim varnarmönnum og ætlaði mér að komast í skotfæri. Ég held að þetta sé besta mark sem ég hef skorað."

„Við verðum að þakka stuðningsmönnunum okkar fyrir að standa svo vel við bakið á okkur í kvöld."

„Bayern er mjög sterkt lið og seinni leikurinn verður erfiður. Nú verðum við samt að hugsa um deildina,"
sagði Saul.

Athugasemdir
banner
banner
banner