Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   sun 28. maí 2017 17:30
Kristófer Kristjánsson
Courtois: Vona að Chelsea gefi mér nýjan samning
Thibaut Courtois hefur verið klettur í marki Chelsea
Thibaut Courtois hefur verið klettur í marki Chelsea
Mynd: Getty Images
Thibaut Courtois vonast til að Chelsea verðlauni frammistöður hans með nýjum samning en hann hjálpaði liðinu að verða enskur meistari á dögunum.

Courtois fékk Gullhanskann góða sömuleiðis en hann hélt hreinu 16 sinnum, oftar en allir aðrir í ensku úrvalsdeildinni. Belginn hefur vakið athygli Real Madrid fyrir frammistöður sínar en hann vill gjarnan skuldbinda sig Chelsea.

„Samningsviðræður eru ekki hafnar en ég er ánægður hjá Chelsea," sagði hann við Sky Sports eftir að Chelsea tapaði í úrslitaleik enska bikarsins gegn Arsenal í gær.

„Ég vona að þeir verðlauni mig með góðum saming, þá mun ég skrifa undir; ekki spurning."

Courtois er 25 ára Belgi en hann hefur verið samningsbundinn Chelsea frá árinu 2011, hann var hinsvegar á láni hjá Atletico Madrid í þrjú tímabil áður en hann gerðist aðalmarkvörður Chelsea 2014.
Athugasemdir
banner
banner