Fyrrum forsætisráðherrann Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er í skýjunum yfir gengi íslenska liðsins á EM í knattspyrnu.
Markvörðurinn Hannes Halldórssson virðist vera í sérstöku uppáhaldi hjá Sigmundi enda greindi Sigmundur frá því á Facebook að ef Hannes yrði ekki verðlaunaður með fálkaorðu mætti hann einfaldlega eiga fálkaorðu Sigmundar.
Hannes hefur varið flest skot allra á mótinu, 23 talsins.
Athugasemdir