Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   sun 28. september 2014 07:00
Grímur Már Þórólfsson
Remy útskýrir afhverju hann fór ekki til Liverpool
Loic Remy
Loic Remy
Mynd: Chelsea
Loic Remy hefur staðfest að Liverpool hafi hafnað að fá sig í sumar vegna óvissu með hjartavandamál leikmannsins.

Leikmaðurinn fór í læknisskoðun hjá Liverpool í sumar en átti að hafa fallið á þeirri læknisskoðun.

Remy fór svo á síðasta degi félagsskiptagluggans til Chelsea en hann hefur nú loksins sagt frá því afhverju hann féll á læknisskoðuninni.

,,Ég fór í læknisskoðunina og allt gek vel en svo vildu þeir athuga með hjartað á mér."

,,Þeir fengu sérfræðing til að skoða það, sem sagði að hann gæti ekki verið 100% öruggur um hvort ég gæti haldið áfram eða ætti að hætta í fótbolta."

,,Ég skildi það ekki því þeir vissu af þessu áður en að ég kom."

,,Ég sagði bara umboðsmanni mínum að ef þetta er ekki að gerast þá er það af því að þetta er ekki fyrir mig,"
sagði Remy.
Athugasemdir
banner
banner
banner