Borgunarbikar karla er í fullum gangi. Önnur umferðin er leikin um helgina og í dag hefur nóg verið að gerast.
Nokkrum leikjum var að ljúka og úrslit eru komin úr fjórum þeirra. Hver veit nema eitthvað skemmtilegt bikarævintýri sé í uppsiglingu hjá einhverjum af þessum liðum?
Sindri lagði Hugin að velli eftir framlengdan leik. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma, en undir lok hans fékk Stefan Spasic, leikmaður Hugins að líta rauða spjaldið.
Það hjálpaði Sindra í framlengingunni og að lokum unnu þeir 4-1 sigur. Nedo Eres gerði þrennu fyrir Sindra.
Þróttur V. fór suður með sjó og kláraði GG, Berserkir unnu KFR með sömu markatölu og Alexander Lúðvígsson tryggði KH sigur á ÍH.

Sindri 4 - 1 Huginn
0-1 Stefán Ómar Magnússon ('1 )
1-1 Nedo Eres ('55 )
2-1 Nedo Eres ('92 )
3-1 Nedo Eres ('100, víti )
4-1 Zeval Zahirovic ('118 )
Rautt spjald: Stefan Spasic, Huginn ('89 )
GG 0 - 3 Þróttur V.
0-1 Andri Björn Sigurðsson ('26 )
0-2 Elvar Freyr Arnþórsson ('34 )
0-3 Andri Björn Sigurðsson ('78 )
Berserkir 3 - 0 KFR
Karel Sigurðsson með þrennu.
Rautt spjald: Jóhann Gunnar Böðvarsson, KFR ('25)
ÍH 0 - 1 KH
0-1 Alexander Lúðvígsson ('5 )
Athugasemdir