Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 29. maí 2017 15:26
Elvar Geir Magnússon
Inter staðfestir áhuga Man Utd á Perisic
Ivan Perisic.
Ivan Perisic.
Mynd: Getty Images
Inter á Ítalíu hefur staðfest fréttir af áhuga Manchester United á króatíska landsliðsmanninum Ivan Perisic.

Piero Ausilio, íþróttastjóri Inter, segir að Perisic sé á óskalista United en Evrópudeildarmeistararnir nýkrýndu séu ekki búnir að gera formlegt tilboð.

Inter verðmetur Perisic á 43,7 milljónir punda en vonast til að tilboðsstríð verði um leikmanninn. Sagt er að Inter hafi einnig áhuga.

„Við viljum byggja sterkt Inter. Við erum með frábæra leikmenn nú þegar í liðinu, eins og Perisic," segir Ausilio.

„Manchester United hefur klárlega áhuga þó það sé ekki komið tilboð enn."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner