Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 29. maí 2017 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Flaug með knöttinn til dómarans í bikarúrslitum
Mynd: Getty Images
Benfica varð í gær bikarmeistari í Portúgal eftir 2-1 sigur gegn Guimaraes í úrslitaleiknum.

Leikurinn sjálfur var þokkalega spennandi en það var ansi skondið atvik sem greip athygli áhorfenda fyrir leik.

Maður klæddur furðulegum búningi og með hjálm flaug um 70 metra á svokölluðum dróna áður en hann sveif aftur niður og rétti dómaranum knöttinn.

Atvikið má sjá hér fyrir neðan. Útskýringar óskast.



Athugasemdir
banner
banner