Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 29. júní 2015 19:28
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Ramos biður um sölu frá Real Madrid
Mynd: Getty Images
Það virðist styttast í félagsskipti Sergio Ramos til Manchester United ef marka má heimildir Sky Sports sem herma að Ramos sé búinn að biðja um sölu frá Real Madrid.

Spænskir fjölmiðlamenn með mikil tengsl inn í herbúðir Real greina frá þessu á Twitter sem og Sky Sports.

Real og Man Utd hafa átt í viðræðum varðandi möguleg félagsskipti Sergio Ramos og David de Gea. Hjólin hafa ekki verið að snúast sérlega hratt hingað til en ljóst er að Ramos ætlar að gera allt í sínu valdi til að flýta fyrir ferlinu.

Ramos er einn af bestu varnarmönnum heims og myndi henta leikstíl United fullkomlega hvort sem Louis van Gaal notar þriggja eða fjögurra manna varnarlínu.
Athugasemdir
banner
banner
banner