Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
Davíð Smári: Menn labba ekki nægilega gíraðir inn í seinni hálfleikinn
Heimir: FH liðið er besta liðið í deildinni í að koma til baka
Andri Rúnar: Eftir jöfnunarmarkið vöknum við ekki aftur til lífsins
Sigurvin: Kredit á strákana að finna þetta afl
Chris Brazell: Við voru mikið með boltann en gerðum ekkert með hann
Siggi Höskulds svekktur: Fókusleysi á mikilvægum augnablikum
Magnús Már: Maður hefur séð ýmislegt í boltanum en ég hef sjaldan séð þetta áður
Gunnar Heiðar: Búnir að æfa í sex mánuði fyrir þennan leik
Vigfús Arnar: Var eins og spennustigið væri eitthvað skrítið hjá okkur
Aron Snær: Ætluðum að keyra á þetta og það verður held ég bara okkar mottó
Haraldur Freyr: Mótið tapast ekki eða vinnst í fyrstu umferð
Aníta Dögg bjargaði málunum: Ég lenti klukkan sex í morgun
Árni Freyr hæstánægður eftir sigur ÍR - „Vona að þeir bæti í"
Staða sem á ekki að koma upp - „Átti að spila þangað til klukkan 23:30 í gærkvöldi"
„Við vitum í hverju við erum góðar“
Búin að skora í öllum leikjunum til þessa - „Mín upprunalega staða"
Hugur allra hjá Andreu Marý - „Óþægilegt í alla staði"
„Það var ráðist á hana inn í okkar vítateig“
Skyndiákvörðun að taka skóna af hillunni - „Hvernig gerðist þetta?“
Þriðja tapið í þriðja leiknum - „Óásættanlegt“
   mið 29. júní 2016 19:01
Arnar Daði Arnarsson
Jói: Þær rassskelltu okkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA var hundsvekktur eftir 6-1 tap gegn Val á útivelli í dag.

Þetta var annað tap Þórs/KA í sumar en þær töpuðu gegn Stjörnunni í fyrstu umferð 4-0. Valsliðið hafði mikla yfirburði í þessum leik og á tímabili hálf vorkenndi maður norðanstelpum að vera á vellinum.

Lestu um leikinn: Valur 6 -  1 Þór/KA

„Við vorum inn í klefa að fara yfir þessi mál. Hvað gerist, það þýðir ekkert að krifja það núna. Það eru margir þættir, þjálfarinn leggur ekki leikinn rétt upp, leikmenn mæta ekki nægilega undirbúnir í leikinn og stemningu vantar og of mikil virðing sýnd hinu liðinu. Þetta eru fullt af þáttum og það er eitt sem við eigum aldrei að gera. Það er að gefast upp. Mér fannst við gera það á köflum í leiknum."

„Það verður til þess að það koma moment í leiknum þar sem þær eru eins og konur að spila á móti litlum stelpum," sagði Jóhann Gunnar sem virðurkennir að þetta hafi verið algjört rúst.

„Þær rassskelltu okkur í dag. Þær gjörsamlega gengu frá okkur og voru betri á öllum sviðum knattspyrnunnar."

Viðtalið í heild sinni við Jóhann þjálfari Þórs/KA má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner