Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   mið 29. júlí 2015 21:53
Valur Páll Eiríksson
Ásgeir Þór: Boltinn var ekki inni
Ásgeir vildi meina að mark Gróttu hefði ekki átt að standa.
Ásgeir vildi meina að mark Gróttu hefði ekki átt að standa.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
„Já þetta eru alls ekki úrslitin sem við ætluðum okkur hér í dag. Við vorum með boltann 98% af leiknum, sköpuðum okkur nóg af færum og fáum ekki á okkur skot en fáum á okkur mark. " sagði Ásgeir Þór Ingólfsson, fyrirliði Grindavíkur, eftir 1-0 tap sinna manna gegn Gróttu á Seltjarnarnesi í kvöld.

Lestu um leikinn: Grótta 1 -  0 Grindavík

„Við fáum tvö mjög góð færi áður en þeir skora og jú, jú smá kjaftshögg en mér fannst við halda áfram. Þetta er alltaf sama gamla klisjan, við erum því miður ekki að nýta færin okkar, við fáum nóg af færum, markmaðurinn þeirra ver tvisvar vel úr horni en bara flottur vinnusigur hjá þeim."

Mark Gróttu var umdeilt en Grindvíkingar vildu meina að boltinn hefði ekki farið yfir línuna. Rúna Kristín Stefánsdóttir, aðstoðardómari, var viss í sinni sök og flaggaði mark.

„Boltinn var bara ekki inni, held ég. Þú sérð viðbrögðin hjá okkur ég sé ekki af hverju við ættum að vera brjálaðir ef boltinn er inni."

Ásgeir ræddi svo um gula spjaldið sem hann fékk fyrir mótmæli og það að Grindvíkingar væru að skrá sig úr toppbaráttunni. Viðtalið má sjá í heild sinni að ofan.
Athugasemdir
banner