Arsenal getur jafnað Manchester City og Leicester City á toppi deildarinnar með sigri gegn Norwich.
Heimamenn í Norwich eru tveimur stigum frá fallsæti og geta komið sér upp að hlið Chelsea með sigri.
Heimamenn í Norwich eru tveimur stigum frá fallsæti og geta komið sér upp að hlið Chelsea með sigri.
Aaron Ramsey er kominn aftur í byrjunarlið Arsenal og þá byrjar Mathieu Flamini í fjarveru Francis Coquelin, Jack Wilshere og Mikel Arteta.
Alexis Sanchez er einnig í byrjunarliðinu þrátt fyrir mikla þreytu og er Olivier Giroud fremstur.
Nathan Redmond er ekki í byrjunarliði heimamanna sem eru einnig búnir að færa vinstri bakvörðinn Robbie Brady upp á vinstri kant.
Norwich: Ruddy; Wisdom, Bennett, Bassong, Olsson; Howson, Dorrans, O'Neil, Brady; Hoolahan; Grabban
Arsenal: Cech, Bellerin, Mertesacker, Koscielny, Monreal, Flamini, Cazorla, Ramsey, Ozil, Alexis, Giroud
Athugasemdir