Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 29. nóvember 2015 17:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pulis: Þetta var mjúk aukaspyna
Tony Pulis
Tony Pulis
Mynd: Getty Images
Tony Pulis, stjóri West Brom, var nokkuð sáttur með að fá stig gegn West Ham í dag.

Pulis var ósáttur með spilamennsku sinna manna í fyrri hálfleik, en hann var þó mun sáttari með frammistöðuna í þeim seinni.

Þetta eru góð úrslit fyrir okkur, en við hefðum klárlega getað stolið þremur stigum í dag," sagði Pulis.

"Þetta var mjúk aukaspyrna sem leiddi til marksins þeirra og við vorum heppnir að vera aðeins einu marki undir í hálfleik,"

"Við vorum þó sterkari í seinni hálfleik og á því liggur enginn vafi."
Athugasemdir
banner