Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. mars 2017 12:00
Magnús Már Einarsson
Dahoud til Dortmund í sumar (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Borussia Monchengladbach hefur staðfest að Mahmoud Dahoud fari frá félaginu til Borussia Dortmund í sumar.

Hinn 21 árs gamli Dahoud var samningsbundinn Gladbach til ársins 2018 en félögin hafa nú náð samkomulagi um skiptin.

Dahoud fæddist í Sýrlandi en hann er uppalinn í Þýskalandi. Hann hóf meistaraflokksferil sinn hjá Glacbach árið 2014.

Mörg félög hafa sýnt Dahoud áhuga undanfarið en hann var meðal annars orðaður við Liverpool og Manchester City í vetur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner