Þýska varnarmaðurinn Antonio Rudiger er genginn til liðs við Roma á Ítalíu, en félagið hafði forkaupsrétt á honum.
Rudiger var á láni hjá Roma frá Stuttgart á tímabilinu sem var að líða og stóð sig býsna vel.
Kaupverðið er talið nema níu milljónum evra, en Rudiger hafði einnig verið orðaður við Chelsea.
„AS Roma hefur ákveðið að nýta sér forkaupsrétt í lánssamningi Antonio Rudiger," segir í yfirlýsingu frá ítalska félaginu.
Rudiger gerir fjögurra ára samning við Roma, en hann heldur nú til Frakklands til þess að berjast með Þjóðverjum á EM.
L'#ASRoma ha esercitato il diritto di opzione per l’acquisizione di Antonio #Rudiger https://t.co/kxcMn9KmeO pic.twitter.com/065CotHJn8
— AS Roma (@OfficialASRoma) May 30, 2016
Athugasemdir