Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 30. júní 2015 09:30
Arnar Daði Arnarsson
Næsti heimaleikur Fram í Úlfarsárdal
Heimavöllur Fram í Úlfarsárdal.
Heimavöllur Fram í Úlfarsárdal.
Mynd: Facebook - Þórður Kristleifsson
Fram spilar næsta heimaleik sinn í 1. deild karla á nýjum heimavelli sínum í Úlfarsárdal.

Fram tekur á móti HK á fimmtudaginn í 9. umferð 1. deildarinnar og þetta verður þeirra fyrsti leikur á gervigrasinu í Úlfarsárdal en þeir hafa leikið fyrstu þrjá heimaleiki sína á Laugardalsvellinum líkt og undanfarin ár.

Fram verður þar með fimmta liðið í 1. deildinni sem leikur heimaleikina sína á gervigrasi.

Það verður mikið húllumhæ hjá Frömurum fyrir leikinn en grillaðir verða hamborgarar fyrir leik.


Athugasemdir
banner
banner