Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 30. ágúst 2014 13:58
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: West Ham 
West Ham fær Alex Song frá Barcelona (Staðfest)
Alex Song í búningi West Ham.
Alex Song í búningi West Ham.
Mynd: West Ham
Barcelona hefur lánað miðjumanninn Alex Song til enska úrvalsdeildarliðsins West Ham.

Þetta var staðfest með tilkynningu á vefsíðu West Ham nú fyrir skömmu, en fréttirnar koma nokkuð á óvart.

Um er að ræða árslangan lánssamning. Barcelona greiddi Arsenal 15 milljónir punda fyrir Kamerúnan árið 2012 og hefur hann leikið 39 deildarleiki á Spáni til þessa.

Song kom ungur að aldri til Arsenal og lék 143 leiki með félaginu á sjö árum. Hann þekkir því vel til í Lundúnum.

Song er áttundi leikmaðurinn sem West Ham fær í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner