Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   þri 31. mars 2015 19:35
Elvar Geir Magnússon
skrifar frá Eistlandi
Emil Hallfreðs: Tek mistökin á mig
Icelandair
Emil Hallfreðsson var fyrirliði Íslands í dag.
Emil Hallfreðsson var fyrirliði Íslands í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta var allt í lagi og ekki mikið meira en það," sagði Emil Hallfreðsson fyrirliði íslenska landsliðsins í 1-1 jafntefli gegn Eistlandi í vináttulandsleik í Tallin í dag.

,,Það virðist vera þegar komið er í svona æfingaleik þá detti þetta í smá kæruleysi og það er eitthvað sem við megum kannski bæta."

,,Mér fannst við byrja af krafti og hefðum getað komist í 2-0 eða 3-0 hefðum við nýtt færin. Svo duttum við niður í sama plan og þeir og eftir það fannst mér þetta ekki frábær leikur.""


Undir stjórn Lars Lagerback og Heimis Hallgrímssonar hefur gengið í æfingaleikjunum ekkert verið frábært á meðan allt gengur eins og í lygasögu í mótsleikjunum.

,,Það er kannski jákvætt á sinn hátt. Þó þessir leikir séu líka mikilvægir þá voru 11 breytingar og nýir menn að fá að spila. Það er líka jákvætt í þessu öllu að menn fái að sýna sig. Eigum við ekki að taka þetta jákvæða út úr þessu."

Emil átti sjálfur mjög góðan leik en gerði mistök í markinu sem Ísland fékk á sig.

,,Ég bjóst ekki við að fá sendinguna og svo rann ég til í snertingunni. Ég get tekið það á mig og skal taka þau mistök á mig. Mistökin eru til að læra af og þetta gerist ekki aftur."

Nánar er rætt við Emil í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir
banner
banner