Kósovó
2
1
Ísland

Lumbardh Dellova
'19
1-0
1-1
Orri Steinn Óskarsson (f)
'21
Elvis Rexhbecaj
'57
2-1
20.03.2025 - 19:45
Fadil Vokrri
Umspil Þjóðadeildarinnar
Dómari: Serdar Gözübüyük
Áhorfendur: 13 þúsund - Uppselt
Fadil Vokrri
Umspil Þjóðadeildarinnar
Dómari: Serdar Gözübüyük
Áhorfendur: 13 þúsund - Uppselt
Byrjunarlið:
1. Arijanet Muric (m)
5. Lumbardh Dellova

6. Elvis Rexhbecaj

7. Milot Rashica
('88)

13. Amir Rrahmani
14. Valon Berisha
('46)

15. Mergim Vojvoda
('79)

17. Ermal Krasniqi
18. Vedat Muriqi
('88)

21. Donat Rrudhani
('46)

23. Leart Paqarada
Varamenn:
12. Visar Bekaj (m)
16. Amir Saipi (m)
2. Dion Gallapeni
3. Fidan Aliti
('79)

4. Ilir Krasniqi
8. Florent Muslija
9. Albion Rrahmani
('88)

10. Emir Sahiti
('46)

11. Baton Zabergja
19. Lindon Emërllahu
('88)

20. Vesel Demaku
('46)

22. Andi Hoti
Liðsstjórn:
Franco Foda (Þ)
Gul spjöld:
Valon Berisha ('38)
Vedat Muriqi ('87)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Ekki nógu gott í kvöld
Serdar Gözübüyük flautar til leiksloka. 2-1 tap staðreynd. Við höfum enþá tækifæri til að bæta upp fyrir þessa frammistöðu í kvöld en seinni leikur þessara liða fer fram á Spáni á sunnudaginn næstkomandi.
Ég, Elvar Geir og Hafliði Breiðfjörð þökkum fyrir okkur í kvöld. Minnum á nánari umfjöllun síðar í kvöld og á morgun. Góðar stundir.
Ég, Elvar Geir og Hafliði Breiðfjörð þökkum fyrir okkur í kvöld. Minnum á nánari umfjöllun síðar í kvöld og á morgun. Góðar stundir.
82. mín
Ekki varnarleikur til árangurs hjá Íslandi
Milot Rashica fær boltann inn á teignum okkar og fær nægan tíma til að koma með skot á markið en sem betur fer nær Rashica ekki að setja boltann framhjá Hákoni.
Kæruleysi aftast hjá strákunum okkar í kvöld og það má ekki.
Kæruleysi aftast hjá strákunum okkar í kvöld og það má ekki.
80. mín
Jón Dagur gerir svo vel þarna
Fær boltann við teiginn vinstra megin og prjónar sig inn á teiginn og gerir allt frábærlega en skotið beint á Muric.
Þarna munaði ekki miklu.
Þarna munaði ekki miklu.
76. mín
Hákon finnur Orra enn og aftur og Orri nær skoti sem Muric ver.
Nægur tími til stefnu. Við verðum að trúa.
Nægur tími til stefnu. Við verðum að trúa.
75. mín
Kosovó setur boltann í netið
Leart Paqarada lyftir boltanum inn á teiginn og Amir Rrahmani fær boltann sem betur fer í höndina áður en hann setti boltann í netið
68. mín
Betra frá okkur strákum
Hákon Arnar finnur Orra inn í teignum. Orri nær lúmsku skoti sem Muric nær að blaka boltanum í hornspyrnu.
Svo nálægt því þarna að jafna leikinn.
Svo nálægt því þarna að jafna leikinn.
63. mín
Hákon að bjarga okkur
Milot Rashica fær boltann inn fyrir og á skot sem Hákon Rafn ver með andltinu.
Við verðum að fara vakna. Arnar Gunnlaugsson er að undirbúa þrefalda skiptingu.
Við verðum að fara vakna. Arnar Gunnlaugsson er að undirbúa þrefalda skiptingu.
57. mín
MARK!

Elvis Rexhbecaj (Kósovó)
Er þetta ekki ólöglegt?
Elvis Rexhbecaj hirðir boltann af Hákoni og setur boltann stöngin og inn.
Mér fannst Elvis brjóta á Hákoni þarna en markið dæmt gott og gilt. Jesús.
Mér fannst Elvis brjóta á Hákoni þarna en markið dæmt gott og gilt. Jesús.
57. mín
Kosovó fær hornspyrnu sem er lyft á teiginn og fyirrliði Kosovó nær skalla en Hákon með allt á hreinu.
55. mín
Muriqi fær boltann inn fyrir og Hákon Rafn með frábæra vörslu en þetta hefði ekki talið en Murqi flaggaður réttilega rangstæður.
52. mín
Mikael Egill nálægt því að sleppa í gegn
Þarna komumst vbið í flotta skyndisókn en fyrsta snerting Mikaels svíkur hann og Muric sparkar boltanum upp völlinn.
50. mín
Lýst ekkert á þessa byrjun Kosovó
Kosovó byrjar þennan síðari hálfleik betur.
Hornspyrna frá hægri og Aron Einar fær hann í sig og boltinn rétt framhjá, þarna munaði litlu að boltinn hafi endað í eigin neti.
Hjúkk. Verðum að fara byrja þennan síðari hálfleik.
Hornspyrna frá hægri og Aron Einar fær hann í sig og boltinn rétt framhjá, þarna munaði litlu að boltinn hafi endað í eigin neti.
Hjúkk. Verðum að fara byrja þennan síðari hálfleik.
47. mín
Milot Rashica með flotta fyrirgjöf en Gulli Victor með flottan varnarleik og nær að trufla Donat nógu mikið og boltinn af Gulla og í hornspyrnu sem ekkert verður úr.
45. mín
Hálfleikstölfræði UEFA
Með boltann: 45% - 55%
Marktilraunir: 7-4
Hornspyrnur: 1-1
Heppnaðar sendingar: 183-249
Gul spjöld: 1-1
Marktilraunir: 7-4
Hornspyrnur: 1-1
Heppnaðar sendingar: 183-249
Gul spjöld: 1-1
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur
Serdar Gözübüyük bætir engu við og allt jafnt þegar leikmenn ganga til hálfleiks.
Fáum okkur kaffi og komum síðan með síðari hálfleikinn beint frá Kosovó eftir fimmtán mínútur.
Fáum okkur kaffi og komum síðan með síðari hálfleikinn beint frá Kosovó eftir fimmtán mínútur.
44. mín
Gult spjald: Aron Einar Gunnarsson (Ísland)

Allttof seinn í Vedat.
Það má alveg segja fagmannlega brotið en Kosóvó voru á leiðinni í álitlega skyndisókn.
Það má alveg segja fagmannlega brotið en Kosóvó voru á leiðinni í álitlega skyndisókn.
42. mín
Hákon Rafn!!
Mergim Vojvoda með fyrirgjöf á hausinn á Donat Rudhani en Hákon Rafn með frábæra markvörslu.
40. mín
Orri Steinn!!
Hákon Arnar fær boltann og þræðir Orra í gegn. Orri nær bara ágætu skoti sem Muric ver
Flaggið á loft og Orri rangstæður.
Flaggið á loft og Orri rangstæður.
38. mín
Gult spjald: Valon Berisha (Kósovó)

Valon Berisha verður í banni í seinni leiknum
Takear Hákon Arnar bara niður og verðskuldað gult spjald á Berisha sem þýðir að hann verður ekki með heimamönnum í seinni leiknum um helgina.
Við grátum það ekkert.
Við grátum það ekkert.
37. mín
Þarna opnaðist allt fyrir okkur
Logi Tómasson fær boltann út til vinstri en Logi með skelfilega fyrirgjöf og hann veit að hann átti að gera betur þarna.
30. mín
Fátt að frétta síðustu mínutur
Skrítin stemming á Dadil Vokkrri verður að segjast. Heyrist ekkert í stúkunni og rólegt inn á vellinum.
23. mín
Orri Steinn nálægt því að bæta við
Orri Steinn fær boltann og reynir bara skot en Muric ver.
Það er komið aukið sjálfstraust í þetta hjá okkur og það er vel.
Það er komið aukið sjálfstraust í þetta hjá okkur og það er vel.
21. mín
MARK!

Orri Steinn Óskarsson (f) (Ísland)
Stoðsending: Ísak Bergmann Jóhannesson
Stoðsending: Ísak Bergmann Jóhannesson
VIÐ SVÖRUM ÞESSU BARA
Orri Steinn Óskarsson maður minn lifandi. Takk.
Ísak Bergmann með geðveikan bolta inn á Orra Stein sem leikur framhjá Arjanet og setur boltann í netið
ÞARNAA. 1-1.
Ísak Bergmann með geðveikan bolta inn á Orra Stein sem leikur framhjá Arjanet og setur boltann í netið
ÞARNAA. 1-1.
19. mín
MARK!

Lumbardh Dellova (Kósovó)
NEI NEI NEI!!
Milot Rashica með aukaspyrnu frá hægri inn á teiginn og eftir eitthvað klafs við teig okkar fellur boltinn fyrir fætur Dellova sem setur boltann í nær hornið.
Þetta var ljótt en upp með hausinn, það er nóg eftir af þessu!
Þetta var ljótt en upp með hausinn, það er nóg eftir af þessu!
16. mín
Góð sókn Íslands
Guðlaugur Victor keyrir upp hægri vænginn og á fastan bolta fyrir sem átti að vera ætlaður Orra en boltann of innarlega og Arjanet Muric grípur boltann.
Lofandi! Koma svo!
Lofandi! Koma svo!
14. mín
Heimamenn eitthvað að hóta
Logi kærulaus og gefur Ermal Krasniqi fyrirgjöf inn á teig okkar en sem betur fer komum við boltanum í burtu.
7. mín
Hætta að marki Íslands
Kosóvar lyfta boltanum inn á teiginn og boltinn dettur dauður við vítapunkt en Logi er fyrstur á hann og kemur boltanum í burtu.
4. mín
Lui X Albert
Logi fær boltann út til vinstri og finnur Albert inn á teiginn og Albert vinnur fyrstu hornspyrnu leiksins.
3. mín
Hákon Arnar með skemmtilega pælingu og lyftir boltanum inn fyrir ætlaðan Andra Lucasi en ekkert hlaup kom frá Andra.
Við erum að byrja þetta ágætlega!
Við erum að byrja þetta ágætlega!
Fyrir leik
Þetta er farið af stað
Serdar Gözubuyuk flautar til leiks. Við byrjum með boltann
Áfram Ísland!
Áfram Ísland!
Fyrir leik
Liðin ganga til leiks
Já góða kvöldið og þakka þér fyrir Elvar Geir. Það er komið að þjóðsöngvum liðanna.
KOMA SVO!!
KOMA SVO!!
Fyrir leik
Tonsinn tekur við tökkunum
Jæja fer að koma að þjóðsöngum og leiknum sjálfum. Ég ætla að gefa boltann á Anton Frey Jónsson sem textalýsir leiknum og ég kem svo með færslur héðan frá Kósovó af og til. Áfram Ísland!
Fyrir leik
Spámenn fréttamannastúkunnar í Kósovó
Aron Guðmundsson hjá Sýn: 1-2. Albert með tvö.
Jóhann Ingi Leeds hjá Mbl: 1-1. Orri.
Elvar Geir (ég): 2-3. Sverrir Ingi eftir horn, Orri og Jón Dagur af bekknum.
Jóhann Ingi Leeds hjá Mbl: 1-1. Orri.
Elvar Geir (ég): 2-3. Sverrir Ingi eftir horn, Orri og Jón Dagur af bekknum.
Fyrir leik
Leikmenn í upphitun
Það er upphitun í gangi á vellinum. Leikmenn hita upp alveg ómeðvitaðir um fréttirnar frá Íslandi um að ráðherra íþróttamála hafi verið að segja af sér.

Fyrir leik
Amir Rrahmani klár í slaginn
Amir Rrahmani, fyrirliði og besti leikmaður Kósovó, er í byrjunarliðinu. Þessi hrikalega öflugi varnarmaður var tæpur fyrir leikinn en hann spilar í kvöld.
Fyrir leik
Byrjunarliðið staðfest og orðrómurinn reyndist réttur
Arnar Gunnlaugsson hefur opinberað sitt byrjunarlið og spilar með þriggja miðvarða kerfi sem túlka má sem 3-4-2-1.
Það er því sannarlega nóg af sóknarhug í byrjunarliðinu; Orri Steinn Óskarsson, Albert Guðmundsson, Hákon Arnar Haraldsson og Andri Lucas Guðjohnsen eru allir í byrjunarliðinu.
Mikael Egill Ellertsson er vængbakvörður hægra megin og Logi Tómasson vinstra megin. Ísak Bergmann Jóhannesson fær traustið á miðsvæðinu.
Arnar stillir upp gríðarlega reynslumikilli þriggja manna varnarlínu í kvöld með Guðlaug Victor Pálsson, Sverri Inga Ingason og Aron Einar Gunnarsson. Eins og Arnar var búinn að gefa út er Hákon Rafn Valdimarsson í markinu.
Þetta eru alls fimm breytingar á skýrslu frá síðasta leik Íslands undir stjórn Age Hareide.

Lítill fugl segir að þetta sé byrjunarliðið
Klukkan 18:30 að íslenskum tíma verður byrjunarliðið opinberað, 75 mínútum fyrir leik. En lítill fugl hvíslaði að okkur að svona væri Arnar að fara að stilla upp, nóg af sóknarþenkjandi leikmönnum og svo gríðarlega reynd þriggja miðvarða lína.
Eins og áður segir er byrjunarliðið þó ekki staðfest enn en þetta er klárlega mjög áhugavert lið!
Eins og áður segir er byrjunarliðið þó ekki staðfest enn en þetta er klárlega mjög áhugavert lið!

Fyrir leik
Göngutúr um Pristinu
Fréttamenn Fótbolta.net styttu biðina eftir leiknum með því að rölta um borgina í dag og Hafliði Breiðfjörð tók myndavélina með. Það gladdi sérstaklega að skoða Bill Clinton styttuna en Clinton er í miklum metum hér í landi eftir að hafa stutt sjálfstæðisbaráttuna.

Fyrir leik
Fyrir leik
Arnar og Orri á fréttamannafundinum fyrir leikinn:
Arnar Gunnlaugsson:
„Þetta er núllpunktur og við erum að reyna að hefja nýja vegferð. Gera einhverja nýja hluti en halda í það sem var vel gert í gamla daga. Þetta mun taka tíma en ég er mjög meðvitaður um að við þurfum úrslit til að halda okkar status í B-deildinni. Maður er spenntur og getur varla beðið eftir að leikurinn byrji."
Orri Steinn Óskarsson:
„Við vitum hvað við þurfum að gera til að læra eins hratt og við getum. Mér finnst við allir hafa verið mjög opnir og móttækilegir fyrir nýjum upplýsingum og gert það besta á æfingum til að ná því besta fram. Undirbúningurinn hefur verið mjög fínn og við erum allir klárir."

19.03.2025 19:15
Arnar Gunnlaugs fyrir sinn fyrsta leik: Get ekki beðið eftir að hann byrji
Orri Steinn Óskarsson:
„Við vitum hvað við þurfum að gera til að læra eins hratt og við getum. Mér finnst við allir hafa verið mjög opnir og móttækilegir fyrir nýjum upplýsingum og gert það besta á æfingum til að ná því besta fram. Undirbúningurinn hefur verið mjög fínn og við erum allir klárir."
19.03.2025 19:25
Orri á sínum fyrsta fundi sem fyrirliði: Kunnum að læra hratt
Fyrir leik
Uppselt á leikinn - 20 Íslendingar
Samkvæmt fjölmiðlum hér í landi er uppselt á leikinn, um 13 þúsund manns. Það verða örfáir Íslendingar á leiknum. Fréttamenn Fótbolta.net rákust á tvo Íslendinga í gær sem verða á leiknum en þeir eru hér í Pristina í vinnuferð. Samkvæmt upplýsingum frá KSÍ verða Íslendingar í stúkunni samtals um 20.
Fyrir leik
Svona var "Leikdagur -1"
Dagurinn fyrir leikdag er kallaður "Matchday -1" í bransanum en hann var annasamur hjá íslenska liðinu. Leikmenn vöknuðu á Spáni og héldu þar á æfingu áður en flogið var yfir til Kósovó. Í gærkvöldi var svo fréttamannafundur á keppnisvellinum þar sem Arnar Gunnlaugsson og Orri Steinn Óskarsson svöruðu spurningum fjölmiðlamanna.
Fyrir leik
Hungur og HM draumar í Aron Einari
Aron Einar Gunnarsson er í landsliðshópnum. Hann ræddi við Fótbolta.net í dag og var um nóg að tala við Aron. Hann ræddi um stöðu sína, gagnrýnina, fyrirliðaskiptin og ýmislegt fleira:
18.03.2025 16:00
Hungur og HM draumar í Aroni Einari - „Góður vinur minn Aron Pálmars talaði um það sama“
Fyrir leik
Orri Steinn er nýr fyrirliði
„Þetta er geggjuð tilfinning og mikið stolt. Það eru ekki allir leikmenn sem fá að upplifa þetta á sínum ferli. Ég er mjög stoltur og hlakka til að leiða strákana áfram," segir Orri um að hafa fengið fyrirliðabandið.
„Maður var mjög spenntur þegar maður frétti af því að Arnar væri að taka við. Svo fékk maður símtal eins og maður bjóst við frá nýjum þjálfara. Þegar hann tilkynnti mér þetta var ég ekki alveg að trúa honum fyrst."
Frábært fyrir mig að hafa Aron innanborðs
Aron Einar Gunnarsson er í hópnum þrátt fyrir að fyrirliðabandið sé nú komið á nýjan aðila. Eins og talað hefur verið um þá þarf Aron ekki band til að vera leiðtogi í hópnum og Orri segir gott að geta leitað ráða hjá honum.
„Aron er auðvitað búinn að vera mikil fyrirmynd okkar frá því að við vorum ungir drengir. Það er frábært fyrir mig að hafa hann innanborðs, hann getur hjálpað mér og það væri verra ef hann væri ekki hérna. Hann veit hvað þetta snýst allt um og getur hjálpað mér í þessu nýja hlutverki."
Mikið sjálfstraust í mönnum
Skiljanlega er sjálfstraust orð sem hægt er að nota um íslenska landsliðið í þessum glugga. Margir af leikmönnum liðsins eru á flottu skriði með sínum félagsliðum og Orri segir það hafa sést á æfingum.
„Maður finnur það á æfingum að það er mikið sjálfstraust í mönnum. Menn eru gíraðir og spenntir fyrir nýjum áherslum og nýjum áherslum og hlutum. Það gefur manni góðan grunn til að byggja á að finna það á æfingum," segir Orri og viðurkennir að það sé góð tilfinning að spila með funheita leikmenn í kringum sig.
„Það gerir starf strækersins aðeins auðveldara. Þegar maður kemur í landsliðsglugga þá eru alltaf frábærir leikmenn kringum mann. Það eyðileggur ekki að þekkja þá mjög vel. Æfingarnar hafa verið mjög flottar hingað til. Gæðin eru geggjuð og æfingasvæðið mjög gott."
Fyrri leikur Kósovó og Íslands verður í Pristina á fimmtudagskvöld, sá seinni í Murcia á sunnudag. Sigurliðið í einvíginu verður í B-deild Þjóðadeildarinnar.
„Mjög spennandi leikir. Það er mikilvægt að frammistaðan sé góð og með frammistöðunni koma yfirleitt góðir sigrar. Okkur finnst mikilvægt núna að bæta sig sem lið og auðvitað ætlum við að vinna."
Að verða faðir
Orri, sem er tvítugur, er ekki bara að taka nýja ábyrgð með landsliðinu heldur einnig í lífinu utan vallar þar sem hann er að verða faðir.
„Maður er með ólétta konu svo maður þarf að hugsa um það. Það þarf að hugsa um það líka. Maður er að taka fulla ábyrgð þessa dagana og það er frábært. Það er gott að geta kúplað sig aðeins út og hugsa stundum um eitthvað annað en fótbolta," segir Orri Steinn Óskarsson.

18.03.2025 14:46
Orri nýr fyrirliði Íslands: Mjög stoltur og hlakka til að leiða strákana
Fyrir leik
Jákvæður hausverkur Arnars
Þegar litið er yfir íslenska hópinn eru ekki margir varnarmenn en samkeppnin um sóknarstöðurnar er mikil og spennandi að sjá hvernig Arnar stillir þessu upp!
18.03.2025 08:15
Staðan á strákunum okkar - Margir mæta heitir til Spánar
18.03.2025 16:30
Líklegt byrjunarlið Íslands - Þrír slagir
Fyrir leik
Síðast gat Kósovó ekki spilað heima hjá sér
Kósovó er eitt yngsta landslið í heimi, eftir að þjóðin fékk sjálfstæði, og lék sinn fyrsta opinbera leik árið 2014. Ísland og Kósovó voru saman í undankeppninni fyrir HM 2018 og mættust tvívegis, Ísland vann báða leikina.
Þá var Kósovó í þeirri stöðu að geta ekki spilað heimaleikinn í heimalandi sínu þar sem ekki var völlur í landinu sem uppfyllti kröfur UEFA. Leikur Kósovó og Íslands fór þá fram í borginni Shkodër í Albaníu.
Ísland vann 2-1 útisigur þar sem Björn Bergmann Sigurðarson og Gylfi Þór Sigurðsson (víti) skoruðu mörk Íslands. Ísland vann svo 2-0 sigur gegn Kósovó á Laugardalsvelli þar sem Gylfi og Jóhann Berg Guðmundsson skoruðu.
Kósovó hefur síðan eignast löglegan þjóðarleikvang í höfuðborginni, Fadil Vokrri leikvanginn þar sem leikur Kósovó og Íslands fer fram á fimmtudagskvöld. Hann tekur um 14 þúsund manns og var tekinn í notkun eftur endurbætur 2018.

Þriðja liðið er frá Hollandi
Það verða Hollendingar sem dæma leikinn en aðaldómari verður Serdar Gözübüyük. sem er af tyrkneskum uppruna.
Hann er 39 ára og dæmir í hollensku úrvalsdeildinni auk þess sem hann hefur dæmt í öllum þremur Evrópukeppnum UEFA í vetur. Síðasti landsleikur sem hann dæmdi var Þjóðadeildarleikur Póllands og Portúgals í október.
Dómari: Serdar Gözübüyük NED
Aðstoðardómari 1: Erwin E. J. Zeinstra NED
Aðstoðardómari 2: Patrick Inia NED
Fjórði dómari: Joey Kooij NED
VAR dómari: Clay Ruperti NED
Aðstoðar VAR dómari: Erwin Blank.NED

Vill ekki heppnissigra með engum framförum
Eftir að hópur Arnars var opinberaður sat hann fyrir svörum á fréttamannafundi og var spurður út í andstæðingana.
„Þetta er lið sem er með hæfileikaríka einstaklinga, með leikmenn sem eru að spila með Napoli, Mallorca, Lille og Freiburg sem dæmi. Þeir eru með reynslumikinn þjálfara (Franco Foda) sem var þjálfari hjá austurríska landsliðinu áður en að Ralf Rangnick tók við. Hann er með reynslu úr alþjóðlegum fótbolta," sagði Arnar.
„Þetta er skemmtilega spilandi lið, sýnd veiði en ekki gefin. Þeir eru (29 sætum) neðar en við á heimslistanum en munurinn á liðunum er samt ekki svo mikill."
„Þetta verður erfitt verkefni við erum með „heimaleik" á Spáni, ekki hérna á Laugardalsvelli sem er eins og gott og við hefðum getað kosið í mars, en ekkert ákjósanlegt, við viljum fá okkar heimaleiki hérna á Laugardalsvelli. Ég á von á erfiðum leikjum."
„Auðvitað vil ég vinna, við viljum halda okkur í B-deildinni, B-deildin er góð fyrir okkur. Ég vil hins vegar ekki vinna og við sýnum ekki neinar framfarir. Ef við vinnum einhverja tvo heppnissigra og lærum ekki neitt þá mun það ekki gera okkur neitt gagn þegar verkefnin og alvaran byrjar í haust," sagði Arnar sem vísar þar í að undankeppni HM 2026 hefst seinna á þessu ári.

Velkomin til Pristína!
Fótbolti.net er með beina textalýsingu frá Pristína í Kósovó þar sem Ísland leikur fyrri leik sinn gegn Kósovó í umspili um sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar. Liðið sem tapar þessu einvígi þarf að sætta sig við það að spila í C-deildinni.
Þetta er fyrsti leikur Arnars Gunnlaugssonar sem landsliðsþjálfari og liðið var fyrr í vikunni að undirbúa leikinn á Spáni. Þegar landsliðshópurinn var tilkynntur spjallaði ég við Arnar í hlaðvarpsviðtali sem má nálgast hér:

12.03.2025 15:00
Arnar Gunnlaugs eftir sinn fyrsta hóp - Klárlega merki um nýja tíma
Byrjunarlið:
12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
2. Logi Tómasson
('65)

4. Guðlaugur Victor Pálsson
5. Sverrir Ingi Ingason
6. Ísak Bergmann Jóhannesson
('65)

8. Hákon Arnar Haraldsson
9. Orri Steinn Óskarsson (f)

10. Albert Guðmundsson
('65)

17. Aron Einar Gunnarsson

22. Andri Lucas Guðjohnsen
23. Mikael Egill Ellertsson
('87)

Varamenn:
1. Elías Rafn Ólafsson (m)
13. Lúkas Petersson (m)
7. Júlíus Magnússon
11. Jón Dagur Þorsteinsson
('65)

14. Þórir Jóhann Helgason
('87)

15. Willum Þór Willumsson
16. Stefán Teitur Þórðarson
('65)

20. Kristian Hlynsson
21. Arnór Ingvi Traustason
('65)

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Davíð Snorri Jónasson
Fjalar Þorgeirsson
Gul spjöld:
Aron Einar Gunnarsson ('44)
Rauð spjöld: