FRÉTTIR28.09.2025, 12:35
Ólafur Kristjánsson lætur af störfum sem þjálfari kvennaliðs Þróttar eftir þetta tímabil og mun taka við sem aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins, en þetta kemur fram í tilkynningu frá Þrótti í dag.
FRÉTTIR28.09.2025, 11:10
Nik Chamberlain, þjálfari Breiðabliks, mun taka við kvennaliði Kristianstad eftir þetta tímabil en þetta kemur fram í tilkynningu frá bæði Breiðablik og Kristianstad í dag.
FRÉTTIR27.09.2025, 14:01
West Ham United hefur tilkynnt ráðningu á nýjum stjóra en Portúgalinn Nuno Espirito Santo skrifaði í dag undir þriggja ára samning við félagið.
FRÉTTIR27.09.2025, 12:00
Rúnar Kristinsson hefur framlengt samning sinn við Fram til næstu tveggja ára í það minnsta en þetta kemur fram í tilkynningu frá Frömurum í dag.
FRÉTTIR27.09.2025, 10:22
Enska stjóranum Graham Potter hefur verið vikið úr störfum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham United eftir aðeins níu mánuði í starfi.
FRÉTTIR26.09.2025, 13:10
Arnar Grétarsson verður ekki áfram þjálfari Fylkis eftir að samningur hans rennur út í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Árbæjarliðinu.
Fylki var spáð sigri í Lengjudeild karla í sumar en sumarið var liðinu mjög erfitt og það var í fallbaráttu. Arnar tók við á miðju tímabili eftir að Árni Freyr Guðnason var rekinn.
FRÉTTIR26.09.2025, 10:16
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir hefur verið lánuð frá Val til hollenska félagsins PEC Zwolle sem spilar í úrvalsdeildinni þar í landi.
Ragnheiður, sem er sóknarsinnaður leikmaður, verður í Hollandi framyfir áramót og út tímabilið. Hún verður því ekki með Val í síðustu fjórum leikjum tímabilsins.
Ragnheiður Þórunn er fædd árið 2007, á að baki 37 unglingalandsleiki og var á sínu öðru tímabili með Val eftir að hafa komið frá uppeldisfélaginu Haukum.
FRÉTTIR25.09.2025, 17:30
Árborg hefur gengið frá þjálfararáðningu fyrir tímabilið 2026. Adólf Bragason og Njörður Steinarsson taka við liðinu, sem leikur í 4. deild karla.
Þeir taka við af Tomasz Luba sem þjálfaði liðið síðustu fjögur tímabil. Í sumar endaði Árborg í 3. sæti 4. deildar og var liðið þremur stigum frá sæti í 3. deild.
Bæði Adólf og Njörður þekkja vel til Árborgar. Adólf stýrði liðinu 2008-2010 og stýrði liðinu upp í 2. deild 2010 sem er besti árangur í sögu félagsins.
Njörður spilaði með liðinu á sínum tíma, var einmitt lykilmaður í liðinu 2010.
FRÉTTIR22.09.2025, 14:07
Miðvörðurinn Hörður Björgvin Magnússon skrifaði í dag undir hjá gríska úrvalsdeildarfélaginu Levadiakos en samningurinn gildir út leiktíðina.
FRÉTTIR20.09.2025, 06:00
16 ára gamall Sebastian 'Seb' Huntelaar er búinn að gera sinn fyrsta atvinnumannasamning.
FRÉTTIR19.09.2025, 23:30
Gunnar Borgþórsson verður ekki áfram þjálfari hjá kvennaliði Selfoss eftir að hafa rúllað yfir 2. deildina á nýliðnu tímabili.
FRÉTTIR19.09.2025, 12:05
Guðjón Pétur Lýðsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla til tveggja ára. Hann tekur við af Ian Jeffs sem hætti í lok tímabils eftir tvö ár í starfi.
Guðjón Pétur er uppalinn Haukamaður og þekkir því mjög vel til á Ásvöllum. Hann hefur verið leikmaður liðsins undanfarin tvö tímabil og var einnig leikmaður meistaraflokks tímabilið 2006 og aftur tímabilin 2009 og 2010.
Hann er að leggja fótboltaskóna á hilluna og tekur þjálfaramappan við. Á sínum leikmannaferli vann Gaui tvennuna í Svíþjóð sem leikmaður Helsingborg og vann tvo Íslandsmeistaratitla og einn bikartitil með Val. Alls skoraði hann 105 mörk í 520 KSÍ leikjum.
FRÉTTIR18.09.2025, 14:52
Benfica hefur ráðið Jose Mourinho sem stjóra til sumarsins 2027. Mourinho tekur við af Bruno Lage sem var rekinn eftir niðurlægjandi tap gegn Qarabag í Meistaradeildinni á þriðjudag.
Það eru örfáar vikur síðan Mourinho var rekinn frá Fenerbahce, eftir einmitt að hafa tapað fyrir Benfica í forkeppni Meistaradeildarinnar.
FRÉTTIR18.09.2025, 06:00
Hin 16 ára gamla Thelma Björg Gunnarsdóttir er gengin í raðir Gróttu frá Sindra. Þetta kemur fram í tilkynningu Gróttu á Instagram.
FRÉTTIR17.09.2025, 18:39
John Andrews hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR næstu þrjú árin en KR-ingar tilkynna þetta á heimasíðu sinni í kvöld.
FRÉTTIR17.09.2025, 17:30
Borja Lopez Laguna hefur lagt skóna á hilluna en hann hefur leikið með Dalvík/Reyni síðustu sjö tímabil.
Bor er 31 árs og lék 19 deildarleiki í sumar og skoraði þrjú mörk, eitt af þeim kom í leiknum gegn Víkingi Ólafsvík, síðasta leik ferilsins, síðasta laugardag. Hann hefur verið lykilmaður í liði Dalvíkur síðustu ár.
Alls lék hann 162 KSÍ leiki með Dalvík/Reyni og skoraði 65 mörk. Hann var í liði ársins í 2. deild sumarið 2023 og liði ársins í 3. deildinni tímabilið á undan.
FRÉTTIR17.09.2025, 16:00
Alexander Aron Davorsson er hættur sem þjálfari Kára eftir tvö ár í starfi á Akranesi. Kári er venslalið ÍA, liðið vann 3. deildina í fyrra og endaði í 9. sæti 2. deildar í sumar eftir að hafa unnið síðustu tvo leiki sína.
Alli segir við Fótbolta.net að hann ætli sér ekki að verða í meistaraflokksþjálfun á næsta tímabili, ætli sér að sinna fjölskyldunni betur eftir sjö ár í meistaraflokksþjálfun. <i>„Þetta er besti staður sem maður þjálfar á, sérstaklega gott að vinna með Andra Júl og Aroni Ými. Það er erfitt að hætta,"</I> segir Alli sem á líka eftir að sakna þess að spila golf með Sigga Jóns alla daga.
FRÉTTIR17.09.2025, 15:02
Leiknir í Breiðholti er komið í þjálfaraleit en ljóst er að Ágúst Gylfason verður ekki áfram þjálfari liðsins.
Ágúst tók við Leikni í byrjun júní af Ólafi Hrannari Kristjánssyni sem var látinn taka pokann sinn.
Ágúst, sem er með mikla reynslu úr þjálfun, tók við Leikni á botni Lengjudeildarinnar en náði því markmiði að halda liðinu í deildinni.
FRÉTTIR17.09.2025, 14:00
Toni Pressley, sem lék með Breiðabliki tímabilið 2023, er tekin við sem þjálfari U18 ára landsliðs kvenna í Bandaríkjunum.
Toni lék 19 leiki með Blikum 2023 en fór svo í Mosfellsbæ þar sem hún var ráðin sem spilandi aðstoðarþjálfari í Lengjudeildinni.
Toni þurfti að fara í krabbameinsmeðferð í annað sinn árið 2024 og spilaði því ekkert með Aftureldingu. Hún var líka aðstoðarþjálfari Aftureldingar á nýliðnu tímabili.
FRÉTTIR17.09.2025, 12:00
Benjamin Mendy, fyrrum leikmaður Manchester City, er genginn í raðir Pogon Szczecin í pólsku úrvalsdeildinni.
Mendy er 31 árs vinstri bakvörður sem kemur á frjálsri sölu eftir að samningi hans við FC Zurich var rift í sumar.
Mendy yfirgaf City árið 2023 þegar samningur hans við félagið rann út.
Hann hafði verið ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot en var sýknaður.