FRÉTTIR04.09.2025, 14:21
Sigurður Þór Reynisson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Fylkis en liðið er fallið niður í 2. deild. Bjarni Þórður Halldórsson og Elías Hlynur Lárusson voru reknir í síðasta mánuði.
Fylkir er í næst neðsta sæti Lengjudeildarinnar með átta stig eftir sautján umferðir af átján og örlög liðsins ráðin. Liðið féll úr Bestu deildinni í fyrra og er nú fallið niður í 2. deild.
FRÉTTIR04.09.2025, 11:21
Framherjinn efnilegi Dagur Orri Garðarsson hefur gert fimm ára samning við Val. Dagur sem er nýorðinn tvítugur kemur til liðsins frá Stjörnunni í Garðabæ en hann hefur leikið á láni hjá HK í sumar þar sem hann hefur skorað 11 mörk í Lengjudeildinni.
Dagur verður áfram hjá HK út tímabilið en samningur hans við Val tekur gildi 1. janúar 2026. Samningur hans við Stjörnuna rennur út eftir tímabilið.
FRÉTTIR04.09.2025, 06:00
Chelsea hefur lánað enska miðjumanninn Kiano Dyer til hollenska félagsins Volendam út tímabilið.
FRÉTTIR03.09.2025, 18:45
Lettneska fótboltakonan Olga Sevcova hefur framlengt við ÍBV út næsta tímabil en frá þessu er greint á <i>ÍBVSport</i> í dag.
FRÉTTIR03.09.2025, 07:00
Kasper Dolberg hefur gengið til liðs við Ajax frá Anderlecht fyrir 10 milljónir evra.
FRÉTTIR02.09.2025, 22:48
Kelechi Iheanacho hefur samið við skoska stórveldið Celtic. Nígeríski sóknarmaðurinn gerir eins árs samning við liðið, með ákvæði um að framlengja um eitt ár.
FRÉTTIR02.09.2025, 19:43
Ilkay Gündogan hefur yfirgefið Manchester City í annað sinn og samið við Tyrklandsmeistara Galatasaray á frjálsri sölu.
FRÉTTIR02.09.2025, 09:21
Svissneski varnarmaðurinn Manuel Akanji er kominn til ítalska liðsins Inter á láni frá Manchester City út tímabilið.
FRÉTTIR02.09.2025, 09:13
Manchester City hefur tilkynnt komu ítalska markvarðarins Gianlugi Donnarumma frá Paris St-Germain, kaupverðið er um 26 milljónir punda.
FRÉTTIR02.09.2025, 09:00
Christantus Uche gekk til liðs við Crystal Palace í gærkvöldi á láni frá Getafe.
Uche er 22 ára gamall Nígerískur sóknarmaður en hann er sagður vera eftirmaður Eberechi Eze sem gekk til liðs við Arsenal í sumar.
FRÉTTIR02.09.2025, 08:30
Hinn 24 ára gamli Bryan Gil er genginn til liðs við Girona frá Tottenham fyrir tæpar 9 milljónir punda.
Hann gekk til liðs við Tottenham frá Sevilla árið 2021 en náði sér engan vegin á strik hjá Lundúnaliðinu.
FRÉTTIR02.09.2025, 08:10
Brasilíski markvörðurinn Ederson gengur í raðir tyrkneska félagsins Fenerbahce frá Manchester City.
Þessi 32 ára leikmaður var átta ár hjá City og hjálpaði liðinu að vinna enska meistaratitilinn sex sinnum auk þess að vinna Meistaradeildina. Hann hefur einnig unnið FA-bikarinn í tvígang og var í þrennuliði City 2022-23.
FRÉTTIR02.09.2025, 07:30
Maxwel Cornet er genginn til liðs við Genoa á láni frá West Ham.
Cornet er 28 ára gamall Fílbeinsstrendingur en hann þekkir vel til hjá Genoa.
FRÉTTIR02.09.2025, 07:00
Manor Solomon er genginn til liðs við Villarreal á láni frá Tottenham út tímabilið.
FRÉTTIR02.09.2025, 06:00
Ben Chilwell er genginn til liðs við Strasbourg í Frakklandi frá Chelsea. Hann skrifar undir tveggja ára samning.
Chilwell er 28 ára gamall vinstri bakvörður. Hann gekk til liðs við Chelsea frá Leicester fyrir 45 milljónir punda árið 2020. Hann náði sér ekki almennilega á skrið hjá Chelsea og var lánaður til Crystal Palace í febrúar.
FRÉTTIR01.09.2025, 23:11
Sofyan Amrabat er genginn til liðs við Real Betis á lánii frá Fenerbahce.
Það er enginn kaupmöguleiki í samningnum.
FRÉTTIR01.09.2025, 22:45
Jamie Vardy er genginn til liðs við ítalska liðið Cremonese. Hann gerir eins árs samning en samningurinn verður framlengdur ef liðið heldur sér uppi í Seriu A.
FRÉTTIR01.09.2025, 22:31
Það var nóg að gera á skrifstofunni hjá Sunderland á lokametrunum á félagaskiptamarkaðnum í kvöld.
FRÉTTIR01.09.2025, 21:54
Reiss Nelson er genginn til liðs við Brentford á láni frá Arsenal. Brentford hefur einnig möguleika á því að kaupa hann.
Nelson er 25 ára gamall vængmaður sem er uppalinn hjá Arsenal. Hann var á láni hjá Fulham á síðustu leiktíð þar sem hann kom við sögu í 12 leikjum og skoraði tvö mörk en meiðsli settu strik í reikninginn.
FRÉTTIR01.09.2025, 21:45
Brasilíski varnarmaðurinn Igor Julio er genginn til liðs við West Ham á láni frá Brighton út tímabilið.