Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24395 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR28.06.2025, 13:00

Moukoko til FCK (Staðfest)

Youssoufa Moukoko, sem var eitt sinn efnilegasti framherji Evrópu, er genginn til liðs við danska meistaraliðið FCK frá Borussia Dortmund.

FRÉTTIR27.06.2025, 14:30

Heaton tekur annað tímabil með Man Utd (Staðfest)

Manchester United hefur framlengt samninginn við Tom Heaton út komandi tímabil. Heaton verður áfram í hlutverki reynslubolta í leikmannahópi United. Hann er 39 ára gamall og sagði eftirfarandi í kjölfar tíðindanna: <i>„Ég er ótrúlega stoltur að fá að vera áfram hjá United. Sem hópur, þá erum við virkilega spenntir fyrir komandi tímabili."</I>

FRÉTTIR27.06.2025, 12:43

Keith Andrews nýr stjóri Brentford (Staðfest)

Brentford hefur ráðið Keith Andrews sem aðalþjálfara liðsins og gerir við hann þriggja ára samning í því starfi. Það er <i>Sky Sports</I> sem greinir frá þessum tíðindum, Andrews verður formlega kynntur seinna í dag. Hann tekur við starfinu af Thomas Frank sem var fyrr í þessum mánuði keyptur til Tottenham.

FRÉTTIR27.06.2025, 11:11

Einar Guðna orðinn þjálfari Víkings (Staðfest)

Einar Guðnason hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í fótbolta til næstu þriggja ára en félagið hefur tilkynnt þetta. Víkingur er í næstneðsta sæti Bestu deildar kvenna með sjö stig sem er langt undir væntingum en liðinu var spáð þriðja sæti. Einar hefur verið búsettur í Svíþjóð undanfarin ár en hann var aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Víkingi áður en hann hélt út.

FRÉTTIR27.06.2025, 10:08

Mikael skrifaði undir við Djurgarden til 2029 (Staðfest)

<i>„Það er mjög skemmtilegt að hafa skrifað undir hjá Djurgarden og ég hef verið gríðarlega spenntur fyrir því að koma hingað. Nú er ég loks mættur og er hrifinn af því sem ég hef séð af Stokkhólmi og hversu gott æfingasvæðið er,"</i> segir íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Anderson við heimasíðu Djurgarden. <i>„Þetta er stór klúbbur með mikinn metnað og ég er með mikla einbeitingu á að ná sigrum. Liðið hefur ekki byrjað tímabilið að óskum en það er enn nóg af stigum í pottinum. Við getum klárlega komist á rétta braut og ég vil hjálpa liðinu að klifra upp töfluna."</i> Mikael hefur skrifað undir samning við sænska félagið til 2029 en hann er keyptur frá danska úrvalsdeildarfélaginu AGF. Í viðtali við heimasíðu Djurgarden kemur hann einnig inn á íslenska landsliðið en Mikael á 33 landsleiki fyrir Ísland og 2 mörk. Hann er 26 ára en lék á sínum tíma fyrir yngri landslið Danmerkur. <i>„Á endanum var eðlilegt val að spila fyrir Ísland því rætur mínar eru þar. Ég vissi líka að það myndi gera afa og ömmu stolt og ég elska að spila fyrir þjóð mína. Ég er mjög stoltur af því að spila fyrir Ísland og vona að ég haldi áfram að gera það meðan ég er hjá Djurgarden."</i> Djurgarden kaupir hann á tvær milljónir evra en það var riftunarákvæðið í samningi Mikaels við danska félagið AGF. Djurgarden fór alla leið í undanúrslit Sambandsdeildarinnar í vor, en tapaði þar gegn verðandi meisturum í Chelsea. Liðið hefur byrjað þetta tímabil illa í deildinni, er einungis í níunda sæti þegar mótið er tæplega hálfnað.

FRÉTTIR27.06.2025, 08:51

Alexander Máni kynntur hjá Midtjylland (Staðfest)

Stjörnumaðurinn Alexander Máni Guðjónsson hefur verið kynntur hjá danska félaginu Midtjylland en Fótbolti.net greindi frá því fyrr í þessum mánuði að hann myndi ganga í raðir félagsins. Alexander varð sextán ára gamall á dögunum og skrifaði í kjölfarið undir samning. Á heimasíðu Midtjylland segir Jacob Larsen, yfirmaður akademíu félagsins, að fylgst hafi verið gaumgæfilega með leikmanninum og hann fór til reynslu og lék með yngri liðum félagsins.

FRÉTTIR27.06.2025, 07:00

Rafal Stefán í Hauka (Staðfest)

Markvörðurinn Rafal Stefán Daníelsson hefur skrifað undir samning við Hauka en hann gengur til liðs við félagið frá Gróttu. Hann skrifar undir samning út tímabilið.

FRÉTTIR26.06.2025, 21:30

Axel Tuanzebe til Burnley (Staðfest)

Varnarmaðurinn Axel Tuanzebe er genginn til liðs við Burnley en hann gengur formlega til liðs við félagið þann 1. júlí þegar samningur hans við Ipswich rennur út. Tuanzebe er 27 ára gamall, hann er uppalinn hjá Man Utd en hann hefur einnig leikið með Aston Villa, Stoke og Napoli.

FRÉTTIR26.06.2025, 13:31

Ronaldo hjá Al Nassr til 2027 (Staðfest)

Sádi-arabíska félagið Al-Nassr hefur gefið það út að Cristiano Ronaldo sé búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið. Hann kom til félagsins í desember 2022 frá Manchester United og verður þar áfram. Miðað við tilkynningu félagsins verður hann þar næsta eina og hálfa árið hið minnsta, eða til ársins 2027. Ronaldo er af mörgum talinn besti leikmaður sögunnar og er einn sá sigursælasti. Hann hefur skorað 938 mörk á ferlinum. Hann varð fertugur í febrúar og virðist vera hvergi nærri hættur.

FRÉTTIR26.06.2025, 13:02

Hartman til Burnley (Staðfest) - Stefnir á píluna eftir ferilinn

Vinstri bakvörðurinn Quilindschy Hartman er genginn í raðir Burnley frá Feyenoord. Hann er 23 ára og hefur skrifað undir fjögurra ára samning. Hollenski landsliðsmaðurinn hefur verið á blaði hjá Burnley í nokkurn tíma og er annar leikmaðurinn sem Burnley fær í glugganum, á eftir markverðinum Max Weiss sem kom frá Karlsruher.

FRÉTTIR26.06.2025, 12:30

Lék með Vestra og fer til Jóa Kalla (Staðfest)

Danski varnarmaðurinn Jeppe Gertsen er genginn í raðir danska félagsins AB í Kaupmannahöfn. Hann gerir þriggja ára samning við félagið. Gertsen lék síðast með Vestra á síðasta tímabili og var með lausan samning eftir tímablið 2024. Hann kom við sögu í 17 leikjum með Vestra í Bestu deildinni og skoraði þrjú mörk. Þegar allir voru heilir var hann á eftir Eiði Aroni Sigurbjörnssyni, Gustav Kjeldsen og Morten Ohlsen Hansen í goggunarröðinni.

FRÉTTIR26.06.2025, 11:07

Steven Caulker í Stjörnuna (Staðfest)

Steven Caulker, fyrrum leikmaður Liverpool og Tottenham, er genginn í raðir Stjörnunnar. Félagið greinir frá þessu með kynningarmyndbandi í dag, en félagaskiptin hafa legið í loftinu síðustu vikur. Hann fær leikheimild með Stjörnunni þegar félagaskiptaglugginn opnar 17. júlí. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Fótbolti.net hefur mun Caulker skrifa undir eins og hálfs árs samning við Stjörnuna. Hann er 33 ára miðvörður sem lék síðast í tyrknesku B-deildinni. Hann lék árið 2012 sinn fyrsta og eina landsleik fyrir England. Í dag er hann landsliðsmaður Síerra Leóne, en afi hans var þaðan. Það er ljóst að þetta eru ein stærstu félagaskipti í sögu íslensks fótbolta. Caulker á að baki 123 leiki í ensku úrvalsdeildinni á sínum ferli. Myndband Stjörnunnar má sjá hér að neðan. Stjarnan ræddi fyrst við Caulker í fyrra eftir ábendingu frá umboðsmanninum Bjarka Má Ólafssyni.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.