Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Axel Tuanzebe til Burnley (Staðfest)
Mynd: Burnley
Varnarmaðurinn Axel Tuanzebe er genginn til liðs við Burnley en hann gengur formlega til liðs við félagið þann 1. júlí þegar samningur hans við Ipswich rennur út.

Tuanzebe er 27 ára gamall, hann er uppalinn hjá Man Utd en hann hefur einnig leikið með Aston Villa, Stoke og Napoli.

Hann kom við sögu í 22 leikjum þegar Ipswich féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann snýr hins vegar aftur í úrvalsdeildina þar sem Burnley spilar þar á næstu leiktíð.

„Þetta var auðveld ákvörðun eftir að ég ræddi við stjórann og skilaboðin voru skýr og nákvæm. Þetta er nýr kafli fyrir mig, kominn aftur í nágreni við Manchester og ég er tilbúinn að halda áfram ferðalaginu hjá Burnley," sagði Tuanzebe.


Athugasemdir
banner