Danski varnarmaðurinn Jeppe Gertsen er genginn í raðir danska félagsins AB í Kaupmannahöfn. Hann gerir þriggja ára samning við félagið.
Gertsen lék síðast með Vestra á síðasta tímabili og var með lausan samning eftir tímablið 2024. Hann kom við sögu í 17 leikjum með Vestra í Bestu deildinni og skoraði þrjú mörk.
Þegar allir voru heilir var hann á eftir Eiði Aroni Sigurbjörnssyni, Gustav Kjeldsen og Morten Ohlsen Hansen í goggunarröðinni.

Hann samdi við Naestved í dönsku C-deildinni í mars og skrifaði undir stuttan samning. Hann er fæddur árið 1997 og er núna genginn í raðir danska C-deildar liðsins. Þar hittir hann fyrir Jóhannes Karl Guðjónsson sem er þjálfari liðsins, var að klára sitt fyrsta heila tímabil í brúnni.
Hjá AB eru líka þrír íslenskir leikmenn. Það eru þeir Ágúst Eðvald Hlynsson, Ægir Jarl Jónasson og Adam Ingi Benediktsson.
Áður en Gertsen fór til Íslands hafði hann verið hjá Fredericia og uppeldisfélaginu Silkeborg.
Athugasemdir