Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 20:54
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool fær markvörð frá Preston (Staðfest)
Woodman varði mark U20 landsliðs Englands sem vann HM 2017.
Woodman varði mark U20 landsliðs Englands sem vann HM 2017.
Mynd: EPA
Liverpool er búið að semja við Freddie Woodman. Hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Preston North End.

Woodman er 28 ára gamall og er ráðinn inn sem þriðji markvörður Liverpool, eftir Alisson Becker og Giorgi Mamardashvili.

Woodman hefur verið aðalmarkvörður Preston í Championship deildinni síðustu þrjú ár en þar áður varði hann mark Swansea City á lánssamningi frá Newcastle.

Woodman rennur út á samningi í sumar og kemur til Liverpool á frjálsri sölu.

Hann þótti gríðarlega mikið efni áður fyrr og lék 56 landsleiki fyrir yngri landslið Englands, en tók aldrei stökkið upp í A-liðið.


Athugasemdir
banner