Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 13:00
Brynjar Ingi Erluson
Moukoko til FCK (Staðfest)
Mynd: FCK
Youssoufa Moukoko, sem var eitt sinn efnilegasti framherji Evrópu, er genginn til liðs við danska meistaraliðið FCK frá Borussia Dortmund.

Moukoko, sem er tvítugur, varð yngsti leikmaðurinn til að spila með Dortmund árið 2020 er hann kom inn á sem varamaður gegn Herthu Berlín.

Þá var hann ný orðinn 16 ára gamall og verið að raða inn mörkum með ungalingaliðum Dortmund.

Hann spilaði 99 leiki á fjórum tímabilum sínum með Dortmund og skoraði 18 mörk ásamt því að vinna sér sæti í þýska landsliðinu fyrir EM á síðasta ári.

Framherjinn hefur þó ekki náð að lifa upp til þeirra væntinga sem gerðar voru til hans. Á síðasta tímabili spilaði hann á láni hjá Nice í Frakklandi þar sem hann skoraði aðeins 2 mörk í 22 leikjum og nú er hann kominn í danska boltann.

FCK hefur fest kaup á honum fyrir 5 milljónir evra og gerði hann samning til 20230.

Íslenski markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er á mála hjá FCK, en hann og Moukoko munu líklega ekki deila klefa lengi en Rúnar hefur aðeins spilað einn leik með liðinu síðan hann kom frá Arsenal fyrir ári og gæti farið annað í leit að meiri spiltíma.


Athugasemdir
banner
banner