Það er mikið af breytingum innan herbúða Bayer Leverkusen í sumar þar sem félagið er búið að missa nokkra lykilmenn úr röðum sínum.
Leverkusen er að keppast við að fylla í skörðin og var að krækja í þrjá leikmenn til að breikka hópinn fyrir næstu leiktíð.
Tveir þeirra eru efnilegir varnarmenn. Abdoulaye Faye kemur úr röðum BK Häcken fyrir 3 milljónir evra og skrifar undir samning til 2030.
Faye er tvítugur miðvörður frá Senegal sem gekk til liðs við Häcken frá Diambars FC í Senegal.
Tim Oermann er annar miðvörður sem er kominn til Leverkusen. Hann kemur úr röðum Bochum og kostar ekki nema um 2 milljónir evra.
Oermann er 21 árs gamall og mun leika með austurríska stórveldinu Sturm Graz á lánssamningi út tímabilið. Hann þykir gríðarlega efnilegur og er mikilvægur hlekkur í U21 landsliði Þýskalands sem er að spila úrslitaleik Evrópumótsins gegn Englandi þessa stundina.
Að lokum er franski miðjumaðurinn Axel Tape kominn á frjálsri sölu frá franska stórveldinu Paris Saint-Germain.
Tape er þó aðeins 17 ára gamall og mun því ekki koma við sögu á næstunni. Hann er varnarsinnaður miðjumaður að upplagi en getur einnig leikið sem miðvörður.
Athugasemdir