Steven Caulker, fyrrum leikmaður Liverpool og Tottenham, er genginn í raðir Stjörnunnar.
Félagið greinir frá þessu með kynningarmyndbandi í dag, en félagaskiptin hafa legið í loftinu síðustu vikur.
Hann fær leikheimild með Stjörnunni þegar félagaskiptaglugginn opnar 17. júlí. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Fótbolti.net hefur mun Caulker skrifa undir eins og hálfs árs samning við Stjörnuna.
Hann er 33 ára miðvörður sem lék síðast í tyrknesku B-deildinni. Hann lék árið 2012 sinn fyrsta og eina landsleik fyrir England. Í dag er hann landsliðsmaður Síerra Leóne, en afi hans var þaðan.
Það er ljóst að þetta eru ein stærstu félagaskipti í sögu íslensks fótbolta. Caulker á að baki 123 leiki í ensku úrvalsdeildinni á sínum ferli. Myndband Stjörnunnar má sjá hér að neðan.
Stjarnan ræddi fyrst við Caulker í fyrra eftir ábendingu frá umboðsmanninum Bjarka Má Ólafssyni.

Athugasemdir