Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 13:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ronaldo hjá Al Nassr til 2027 (Staðfest)
Vann Þjóðadeildina með Portúgal á dögunum.
Vann Þjóðadeildina með Portúgal á dögunum.
Mynd: EPA
Mynd: Al Nassr
Sádi-arabíska félagið Al-Nassr hefur gefið það út að Cristiano Ronaldo sé búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið.

Hann kom til félagsins í desember 2022 frá Manchester United og verður þar áfram. Miðað við tilkynningu félagsins verður hann þar næsta eina og hálfa árið hið minnsta, eða til ársins 2027.

Ronaldo er af mörgum talinn besti leikmaður sögunnar og er einn sá sigursælasti. Hann hefur skorað 938 mörk á ferlinum. Hann varð fertugur í febrúar og virðist vera hvergi nærri hættur.


Athugasemdir
banner