Vinstri bakvörðurinn Quilindschy Hartman er genginn í raðir Burnley frá Feyenoord. Hann er 23 ára og hefur skrifað undir fjögurra ára samning.
Hollenski landsliðsmaðurinn hefur verið á blaði hjá Burnley í nokkurn tíma og er annar leikmaðurinn sem Burnley fær í glugganum, á eftir markverðinum Max Weiss sem kom frá Karlsruher.
Hollenski landsliðsmaðurinn hefur verið á blaði hjá Burnley í nokkurn tíma og er annar leikmaðurinn sem Burnley fær í glugganum, á eftir markverðinum Max Weiss sem kom frá Karlsruher.
Burnley hefur einnig fengið Zian Flemming, Marcus Edwards, Jaidon Anthony og Bashir Humphreys alfarið eftir að þeir voru á láni á síðasta tímabili þegar liðið komst upp í úrvalsdeildina að nýju.
Hartman mun væntanlega berjast við Lucas Pires og Humphryes um vinstri bakvarðarstöðuna.
Hartman er áhugaverður karakter sem hefur sagst ætla að verða atvinnumaður í pílukasti þegar hann hættir í boltanum.
???? pic.twitter.com/mq0XMR3A0f
— Burnley FC (@BurnleyOfficial) June 26, 2025
Athugasemdir