Markvörðurinn Rafal Stefán Daníelsson hefur skrifað undir samning við Hauka en hann gengur til liðs við félagið frá Gróttu. Hann skrifar undir samning út tímabilið.
Rafal Stefán er uppalinn hjá Fram en hann lék með Þrótti Vogum frá 2020-2022 áður en hann gekk til liðs við Gróttu. Hann á að baki 129 leiki í meistaraflokki.
Árin 2017 og 2018 fór hann m.a. á reynslu til Liverpool og hefur einnig æft með Everton og fór á lán til Bournemouth.
Rafal var fastamaður í liði Gróttu sem féll úr Lengjudeildinni síðasta sumar. Hann mun nú spila með Haukum í 2. deild.
Athugasemdir