FRÉTTIR22.05.2025, 18:20
Burnley er búið að ganga frá kaupum á varnarmanninum Bashir Humphreys frá Chelsea fyrir um 15 milljónir punda. Chelsea heldur hlutfalli af endursölurétti leikmannsins og fær því prósentu ef Burnley selur Humphreys frá félaginu.
FRÉTTIR22.05.2025, 15:43
Króatíski miðjumaðurinn Luka Modric mun yfirgefa Real Madrid þegar samningur hans við félagið rennur út. Hann mun spila með félaginu á HM félagsliða og fara svo eftir það.
Spænska stórveldið hefur staðfest þessi tíðindi.
FRÉTTIR22.05.2025, 15:30
Agnar Óli Grétarsson gekk á dögunum í raðir KA en Agnar Óli, sem er 16 ára gamall, kemur til félagsins frá KF.
Agnar skrifaði undir samning sem gildir út sumarið 2027.
FRÉTTIR21.05.2025, 18:01
Þýski þjálfarinn Hansi Flick hefur framlengt samning sinn við Spánarmeistara Barcelona til 2027.
FRÉTTIR21.05.2025, 16:10
Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir hefur skrifað undir samning við Angel City í Bandaríkjunum. Félagið greindi frá þessu núna rétt áðan.
Sveindís hefur síðustu ár spilað með Wolfsburg í Þýskalandi en hún yfirgaf félagið á dögunum eftir að samningur hennar rann út.
FRÉTTIR21.05.2025, 06:00
Kvennalið ÍR er búið að styrkja hópinn sinn til muna fyrir átök sumarsins. Eftir að hafa gert nýja samninga við einhverja leikmenn liðsins eru tíu nýir leikmenn búnir að bætast við.
FRÉTTIR20.05.2025, 21:41
Varnarmaðurinn þaulreyndi Hörður Björgvin Magnússon verður samningslaus í sumar. Gríska stórveldið Panathinaikos staðfestir þetta.
FRÉTTIR20.05.2025, 17:00
Miðjumaðurinn Abdoulaye Doucoure mun í sumar yfirgefa Everton þegar samningur hans við félagið rennur út.
Doucoure fékk áframhaldandi samningstilboð frá Everton en ákvað að hafna því.
FRÉTTIR18.05.2025, 17:11
Franski sóknartengiliðurinn Rayan Cherki mun yfirgefa Lyon eftir þetta tímabil en þetta staðfesti hann við blaðamenn eftir síðasta leik liðsins í frönsku deildinni í gær.
FRÉTTIR18.05.2025, 11:30
Enski þjálfarinn Will Still er hættur með franska liðið Lens en þetta staðfesti hann á blaðamannafundi eftir lokaumferðina í frönsku deildinni í gær.
FRÉTTIR17.05.2025, 15:40
Halldór Páll Geirsson, sem fékk félagaskipti í ÍBV í vetur og spilaði með liðinu í deildabikarnum, hefur fengið félagaskipti aftur í KFS og getur verið til taks í 3. deildinni í sumar.
KFS er í 4. deild og er nú með þrjá markmenn sem geta barist um stöðuna. Dagur Einarsson fékk að líta rauða spjaldið í fyrstu umferðinni og inn á kom Guðjón Orri Sigurjónsson. Núna bætist Halldór Páll við flóruna.
FRÉTTIR17.05.2025, 15:20
Völsungur hefur fengið öflugan markmann að láni frá nágrönnum sínum í Þór/KA því Harpa Jóhannsdóttir er komin með leikheimild með Völsungi.
Harpa er fædd árið 1998 og á að baki 132 KSÍ leiki og varði mark Þórs/KA í bikarleiknum gegn KR um síðustu helgi.
Hún lék í 11 af 23 leikjum Þórs/KA í Bestu deildinni í fyrra og á alls að baki 65 leiki í efstu deild.
FRÉTTIR17.05.2025, 10:30
Dean Huijsen, varnarmaður Bournemouth, mun í sumar ganga í raðir Real Madrid. Frá þessu greinir spænska félagið á samfélagsmiðlum sínum. Hann mun geta spilað með Real á HM félagsliða í sumar.
Real virkjaði riftunarákvæði í samningi Huijsen nýlega og mun greiða 50 milljónir punda í þremur greiðslum á næstu tveimur árum. Bournemouth greiddi 12 milljónir punda til að fá hann frá Juventus síðasta sumar.
Huijsen er spænskur landsliðsmaður sem fæddur er í Hollandi. Hann var einn heitasti bitinn á markaðnum en nú er ljóst að hann gengur í raðir Real eftir að tímabilinu á Englandi lýkur. Newcastle, Chelsea, Liverpool og Arsenal voru á meðal félaga sem horfðu til Huijsen.
FRÉTTIR15.05.2025, 14:00
Stokkseyri hefur fengið mjög áhugaverðan liðsstyrk, og verulega öflugan ef það eru ennþá töfrar í takkaskónum, því markavélin Hrvoje Tokic er genginn í raðir félagsins. Hann kemur í Stokkseyri frá grönnunum í Árborg.
Tokic verður 35 ára í sumar, hann er framherji sem hefur skorað 136 mörk í 174 KSÍ leikjum. Hann spilaði ekkert í fyrra en sumarið 2023 skoraði hann tíu mörk í átta leikjum í 4. deild 2023. Á sínum tíma lék hann með Víkingi Ólafsvík og Breiðabliki í efstu deild og skoraði þá 14 mörk í 42 leikjum.
FRÉTTIR15.05.2025, 06:00
Sænski landsliðsmaðurinn Daniel Svensson er genginn alfarið í raðir Borussia Dortmund frá danska félaginu Nordsjælland, en hann hefur eytt síðustu mánuðum á láni hjá Dortmund.
FRÉTTIR14.05.2025, 19:30
Franska A-deildarfélagið Mónakó hefur staðfest félagaskipti Eric Dier frá Bayern München en hann mun formlega ganga í raðir félagsins í næsta mánuði.
FRÉTTIR13.05.2025, 18:30
Enska Championship félagið Watford er búið að ráða inn nýjan þjálfara eftir að Tom Cleverley var rekinn fyrir rúmri viku síðan.
FRÉTTIR12.05.2025, 14:37
Brasilíska fótboltasambandið hefur staðfest að Carlo Ancelotti taki við landsliði þjóðarinnar. Hann tekur til starfa þann 26. maí.
Þessi 65 ára stjóri hættir með Real Madrid og mun Xabi Alonso taka við á Bernabeu leikvangnum.
Ancelotti skráir sig á spjöld sögunnar sem fyrsti erlendi þjálfari brasilíska liðsins og mun taka við stjórnartaumunum fyrir leiki gegn Ekvador og Paragvæ í undankeppni HM sem fara fram í júní.
FRÉTTIR09.05.2025, 12:28
Xabi Alonso er að hætta sem þjálfari Bayer Leverkusen en þetta staðfesti hann á fréttamannafundi rétt í þessu.
<i>„Félagið og ég höfum náð samkomulagi um að þeir tveir leikir sem eru eftir á tímabilinu verði mínir síðustu hjá Bayer Leverkusen. Nú er rétti tímapunkturinn,"</i> segir Alonso sem vill þó ekki ræða framtíðina að svo stöddu.
Spænskir fjölmiðlar hafa greint frá því að hann sé með munnlegt samkomulag um að taka við Real Madrid.
FRÉTTIR08.05.2025, 11:26
Wolfsburg tilkynnti í dag að markmaðurinn Anneke Borbe, sóknarmaðurinn Sveindís Jane Jónsdóttir og varnarmaðurinn Lynn Wilms myndu allar yfirgefa félagið þegar samningar þeirra renna út 30. júní í sumar.