Riera rekinn frá Frankfurt (Staðfest)
Spænski þjálfarinn Albert Riera var í gær rekinn frá þýska félaginu Eintracht Frankfurt.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25085 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Spænski þjálfarinn Albert Riera var í gær rekinn frá þýska félaginu Eintracht Frankfurt.
Hollenski bakvörðurinn Tyrell Malacia mun yfirgefa Manchester United þegar samningur hans rennur út í sumar, en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í kvöld.
Xabi Alonso var kynntur sem nýr þjálfari Chelsea í morgun og er hann mjög spenntur fyrir nýju starfi eftir að hafa stýrt B-liði Real Sociedad, Bayer Leverkusen og Real Madrid á upphafi þjálfaraferilsins.
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er búið að staðfesta ráðningu Spánverjans Xabi Alonso. Hann mun taka við sem stjóri liðsins í sumar og skrifar undir fjögurra ára samning þess efnis.
Pólski sóknarmaðurinn Robert Lewandowski yfirgefur Barcelona þegar samningur hans rennur út í sumar. Þetta staðfesti hann á Instagram í dag.
Enski bakvörðurinn Tariq Lamptey er án samnings eftir að hafa samið við Fiorentina um starfslok.
Argentínska goðsögnin Carlos Tévez er í leit að nýju félagi eftir að samningur hans við Club Atlético Talleres í heimalandinu rann út.
Kristófer Jónsson verður formlega samningslaus í lok júní þegar samningur hans við ítalska félagið Triestina rennur út. Samningurinn hefði verið lengri en fellur úr gildi þar sem Triestina féll úr C-deildinni í vetur. Liðið endaði í neðsta sæti A-riðils í deildinni. 24 stig voru dregin af liðinu í vetur og ef ekki hefði verið fyrir frádrátinn hefði liðið getað haldið sér uppi með góðu gengi í fallumspilinu. Frádrátturinn var vegna fjárhagsvandræða.
Carlo Ancelotti hefur framlengt samning sinn við brasilíska landsliðið og mun því stýra liðinu á HM 2030.
Borussia Dortmund hefur tekið forskot á félagskiptasæluna en liðið hefur sótt franska táninginn Joane Gadou frá FC Salzburg. Gadou, sem er nítján ára hafsent, skrifar undir samning til ársins 2031. Þýski miðillinn Bild greinir frá því að Dortmund hafi greitt tæpar 19 milljónir evra fyrir Gadou.
Keflavík hefur staðfest félagaskipti Aldísar Tinnu Traustadóttur til félagsins.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Það er skemmtileg blanda úr enska og íslenska boltanum á lista vikunnar.
Varnarmaðurinn Andri Steinn Ingvarsson er búinn að skrifa undir lánssamning við KÁ og mun leika með liðinu í 3. deildinni í sumar.
Haukur Darri Pálsson er snúinn aftur í Vogana þar sem hann gerir þriggja ára samning við Þrótt eftir eins árs fjarveru.
Selfoss tilkynnti í dag að félagið hefði samið við Rökkva Rafn Agnesarson út tímabilið. Samið var við Benjamín Jónsson í síðasta mánuði eftir að Arnór Elí Kjartansson meiddist. Benjamín var í byrjunarliðinu gegn KFA í 1. umferð deildarinnar en fékk að líta rauað spjaldið og verður því í leikbanni þegar Selfoss heimsækir Hvíta riddarann á morgun.
KFG styrkti sig undir lok gluggans fyrir átökin í 2. deild í sumar. KFG er venslalið Stjörnunnar. Við sögðum frá því í síðasta mánuði þegar Brynjar Gauti Guðjónsson gekk í raðir félagsins og fleiri þekktar stærðir skiptu til félagsins í kjölfarið.
Þýski stjórinn Fabian Hürzeler hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Brighton til 2029.
Aron Jóhannsson og Orri Sigurjónsson hafa gert félagaskipti yfir í Þrótt. Orri var ráðinn styrktarþjálfari liðsins í janúar en hann spilaði 16 leiki með uppeldisfélaginu sínu Þór þegar liðið vann Lengjudeildina og tryggði sér sæti í Bestu deildinni síðasta sumar.
Félagaskiptaglugginn fyrir lið í Lengjudeildum karla og kvenna lokaði í gær. Völsungur styrkti sig á lokametrunum og fékk tvo markverði. Jochum Magnússon er genginn til liðs við félagið frá Víkingi en hann er efnilegur markvörður. Hann er fæddur árið 2007 en hann kom við sögu í einum leik í Reykjavíkurmótinu með Víkingi í vetur. Hann hefur spilað níu landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
Tómas Þórðarson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Þrótt Vogum. Tómas er sóknarmaður sem gekk til liðs við félagið frá Dalvík/Reyni. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Þrótt þegar liðið vann dramatískan sigur á Haukum í 2. deild um síðustu helgi. Tómas kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið.