Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   fös 15. maí 2026 22:55
Ívan Guðjón Baldursson
Carlos Tévez leitar að nýju félagi
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Argentínska goðsögnin Carlos Tévez er í leit að nýju félagi eftir að samningur hans við Club Atlético Talleres í heimalandinu rann út.

Samningurinn átti að gilda þar til 30. júní en Tévez náði samkomulagi við stjórn félagsins um að hætta fyrr.

Talleres gerði flotta hluti undir stjórn Tévez, sem tók við í fyrrasumar, en ekki tókst að semja um nýjan samning. Hann hefur áður starfað sem aðalþjálfari hjá Independiente og Rosario Central í argentínska boltanum.

Tévez stýrði Talleres í 35 keppnisleiki og fékk að meðaltali 1,43 stig á leik. Liðið endaði í fjórða sæti á fyrri hluta argentínsku deildarinnar en datt úr leik í 16-liða úrslitum í umspilinu. Það er þó bættur árangur frá seinni hlutanum í fyrra þegar Talleres endaði í áttunda sæti undir stjórn Tévez og tapaði fyrir Boca Juniors í 16-liða úrslitum umspilsins.

Tévez hefur hingað til eingöngu þjálfað félagslið í Argentínu en er talinn vera opinn fyrir því að reyna fyrir sér í Evrópu.

Tévez lék á sínum tíma fyrir Manchester United, Manchester City og Juventus auk þess að spila 76 landsleiki fyrir Argentínu.

   20.07.2025 09:30
Carlos Tevez þjálfar Talleres (Staðfest)

Slapp
banner