Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   fim 07. maí 2026 18:25
Brynjar Ingi Erluson
Hürzeler hjá Brighton til 2029 (Staðfest)
Mynd: EPA
Þýski stjórinn Fabian Hürzeler hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Brighton til 2029.

Hürzeler er aðeins 33 ára gamall en var treyst fyrir starfinu hjá Brighton árið 2024 eftir að Roberto De Zerbi hætti.

Á fyrsta tímabili Hürzeler hafnaði Brighton í 8. sæti deildarinnar og er liðið aftur í baráttu um Evrópusæti. Það situr i augnablikinu í 8. sæti og aðeins einu stigi frá Evrópusæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

Brighton er mjög ánægt með störf Hürzeler og staðfesti það með tilkynningu sinni í dag, en hann hefur skrifað undir nýjan samning sem gildir til 2029.

„Ég er hæstánægður með að hafa samþykkt nýjan samning og ég elska að starfa fyrir félagið og búa í borginni. Það er alger heiður að fá þessa langtíma skuldbindingu hjá félaginu sem styrkir þrá mína í að ná langtímamarkmiðum okkar.“

„Frá því ég kom hefur einbeitingin alltaf verið á því að smíða einkenni okkar, þróa liðið, ögra ríkjandi öflum og hækka kröfurnar á hverjum degi. Ég er stoltur af því sem við höfum áorkað til þessa og enn spenntari fyrir komandi tímum,“
sagði Hürzeler.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner