Keflavík hefur staðfest félagaskipti Aldísar Tinnu Traustadóttur til félagsins.
Aldís Tinna er fædd 2007 og kemur á lánssamningi frá FH. Hún er efnileg og skoraði 9 mörk í 16 leikjum með ÍH í 2. deildinni í fyrra.
Aldís leikur sem miðjumaður og er fengin til að styrkja leikmannahóp Keflavíkur fyrir komandi átök í Lengjudeildinni.
Keflavík er með þrjú stig eftir tvær fyrstu umferðir deildartímabilsins. Aldís lék seinni hálfleikinn í 2-0 tapi gegn Haukum síðasta föstudag.



