Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fös 08. maí 2026 11:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fleiri þekktar stærðir skiptu í KFG (Staðfest)
Elís Rafn kominn í KFG.
Elís Rafn kominn í KFG.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KFG styrkti sig undir lok gluggans fyrir átökin í 2. deild í sumar. KFG er venslalið Stjörnunnar.

Við sögðum frá því í síðasta mánuði þegar Brynjar Gauti Guðjónsson gekk í raðir félagsins og fleiri þekktar stærðir skiptu til félagsins í kjölfarið.

Elís Rafn Björnsson (1992), fyrrum leikmaður Fylkis og Stjörnunnar, skipti í KFG og þá kemur Jón Hrafn Barkarson á láni frá Stjörnunni. Elís Rafn á samkvæmt Transfermarkt 138 leiki í efstu deild. Jón Hrafn er kantmaður, fæddur 2003, en nær ekki að spila allt sumarið á Íslandi vegna náms.

Þá skipti Bjarki Arnaldarson til félagsins frá Leikni en hann var varamarkvörður Fram á síðasta tímabili.

Anton Ari Bjarkason kom frá Fram, Hlynur Már Friðriksson kom frá Kormáki/Hvöt, Aron Bjarni Arnórsson kom frá Gróttu og þeir Guðmundur Thor Ingason, Aron Freyr Heimisson og Már Hallgrímsson komu frá Stjörnunni.

KFG tekur á móti Þrótti Vogum í 2. umferð 2. deildar á morgun.
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 4 3 0 1 14 - 4 +10 9
2.    Fjölnir 4 3 0 1 12 - 6 +6 9
3.    Kári 4 2 1 1 10 - 7 +3 7
4.    Kormákur/Hvöt 4 2 0 2 7 - 4 +3 6
5.    KFA 4 2 0 2 10 - 8 +2 6
6.    Hvíti riddarinn 4 1 3 0 6 - 4 +2 6
7.    Þróttur V. 4 2 0 2 5 - 6 -1 6
8.    Selfoss 4 1 2 1 7 - 8 -1 5
9.    Dalvík/Reynir 4 1 1 2 5 - 6 -1 4
10.    Víkingur Ó. 4 1 1 2 6 - 11 -5 4
11.    KFG 4 1 0 3 5 - 12 -7 3
12.    Magni 4 1 0 3 4 - 15 -11 3
Slapp
banner
banner
banner