Fotbolti.net
10.05.26 - 23:02
Ívan Guðjón Baldursson

Haukur Darri aftur í Voga (Staðfest)

Haukur Darri aftur í Voga (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur Vogum

Haukur Darri Pálsson er snúinn aftur í Vogana þar sem hann gerir þriggja ára samning við Þrótt eftir eins árs fjarveru.
Haukur Darri, sem er uppalinn hjá Breiðabliki, skoraði 8 mörk í 21 leik í 2. deildinni með Þrótti 2024 og skipti til Hauka í kjölfarið.

Hann átti erfitt uppdráttar í Hafnarfirði og snýr því aftur í Vogana til að reyna að hjálpa Þrótti upp um deild. Þróttur rétt missti af sæti í Lengjudeildinni í fyrra, liðið endaði aðeins tveimur stigum frá toppsæti 2. deildar.

Haukur, sem er 25 ára gamall, má ekki spila í leikjum Þróttar gegn Haukum í sumar útaf sérstöku ákvæði.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.