Fotbolti.net
07.05.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Aron Jóhanns og Orri Sigurjóns skiptu í Þrótt R. (Staðfest)

Orri Sigurjónsson

Orri Sigurjónsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Aron Jóhannsson og Orri Sigurjónsson hafa gert félagaskipti yfir í Þrótt.

Orri var ráðinn styrktarþjálfari liðsins í janúar en hann spilaði 16 leiki með uppeldisfélaginu sínu Þór þegar liðið vann Lengjudeildina og tryggði sér sæti í Bestu deildinni síðasta sumar.
Orri Sigurjóns er nýr styrktarþjálfari Þróttar
TENGT EFNI

Orri Sigurjóns er nýr styrktarþjálfari Þróttar

Orri var að berjast við erfið höfuðmeiðsli og spurning hvort hann muni taka skóna fram á ný.

Aron er 32 ára gamall en hann lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil en hann spilaði með Aftureldingu í Bestu deildinni.

Þróttur er í 3. sæti Lengjudeildarinnar með sex stig eftir tvær umferðir. Liðið vann Njarðvík og ÍR en næsti leikur liðsins er gegn Völsungi á útivelli á laugardaginn.
Aron Jóhannsson

Aron Jóhannsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.