Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
   fim 14. maí 2026 17:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ancelotti stýrir Brasilíu á HM 2030 (Staðfest)
Mynd: EPA
Carlo Ancelotti hefur framlengt samning sinn við brasilíska landsliðið og mun því stýra liðinu á HM 2030.

Þessi 67 ára gamli Ítali tók við landsliðinu í maí í fyrra. Hann hefur valið 55 manna úrtakshóp fyrir HM í Norður Ameríku í sumar. Neymar er m.a. í hópnum.

„Ég hef skilið hvað fótbolti þýðir fyrir þessa þjóð frá fyrstu mínútu. Við höfum unnið að því að koma landsliðinu aftur á toppinn en ég og brasilíska sambandið viljum meira. Fleiri sigra, meeiri tíma og meiri vinnu," sagði Ancelotti.

Brasilía er í C-riðli á HM í sumar með Marokkó, Haíti og Skotlandi. Riðillinn er spilaður í Bandaríkjunum.


Slapp
banner
banner