Kristófer Jónsson verður formlega samningslaus í lok júní þegar samningur hans við ítalska félagið Triestina rennur út. Samningurinn hefði verið lengri en fellur úr gildi þar sem Triestina féll úr C-deildinni í vetur. Liðið endaði í neðsta sæti A-riðils í deildinni.
24 stig voru dregin af liðinu í vetur og ef ekki hefði verið fyrir frádrátinn hefði liðið getað haldið sér uppi með góðu gengi í fallumspilinu. Frádrátturinn var vegna fjárhagsvandræða.
24 stig voru dregin af liðinu í vetur og ef ekki hefði verið fyrir frádrátinn hefði liðið getað haldið sér uppi með góðu gengi í fallumspilinu. Frádrátturinn var vegna fjárhagsvandræða.
Kristófer var að ljúka sínu þriðja tímabili með liðinu, miðjumaðurinn lék í öllum 38 deildarleikjum liðsins í vetur og skoraði þrjú mörk.
Óvíst er hvað Kristófer, sem fæddur er 2003, gerir næst á sínum ferli en viðtal við hann verður birt á næstu dögum. Kristófer er uppalinn hjá Haukum, fór 2001 til Vals og svo til Venezia á Ítalíu strax þá um sumarið. Hann var hjá Venezia í tvö ár, sneri þá aftur í Val í stuttan tíma og hélt svo aftur til Ítalíu og þá til Triestina. Hann á að baki 26 leiki fyrir yngri landslið Íslands.



