Fotbolti.net
16.05.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Tariq Lamptey samdi um starfslok

Tariq Lamptey samdi um starfslok
Canon

Mynd: EPA

Enski bakvörðurinn Tariq Lamptey er án samnings eftir að hafa samið við Fiorentina um starfslok.
Lamptey gekk til liðs við Fiorentina í fyrrasumar og skrifaði undir þriggja ára samning við ítalska félagið en hann sleit krossband í september og hefur verið frá keppni allt tímabilið.

Lamptey spilaði aðeins um hálftíma fyrir Fiorentina en þar áður var hann samningsbundinn Brighton í ensku úrvalsdeildinni. 25 ára Lamptey er því frjáls ferða sinna í sumar.

Hann er uppalinn hjá Chelsea og þótti gríðarlega mikið efni á sínum yngri árum. Hann er með 20 leiki að baki fyrir yngri landslið Englands og hefur leikið 11 A-landsleiki fyrir Gana.

Lamptey var hjá Brighton í sex ár þar til Fiorentina keypti hann fyrir um 6 milljónir evra. Lamptey tókst aldrei að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliði Brighton en kom þó við sögu í 122 keppnisleikjum áður en hann var seldur.

Lamptey, sem er þekktur fyrir ógnarmikinn hraða, var sífellt að glíma við ýmis smávægileg meiðsli á dvöl sinni hjá Brighton. Þau héldu honum frá því að festa sig í sessi með byrjunarliðinu.

Lamptey orðinn liðsfélagi Alberts (Staðfest)
TENGT EFNI

Lamptey orðinn liðsfélagi Alberts (Staðfest)

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Tariq Lamptey samdi um starfslok
Canon

Mynd: Fiorentina

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.