Fotbolti.net
17.05.26 - 21:46
Brynjar Ingi Erluson

Malacia yfirgefur Man Utd (Staðfest)

Malacia yfirgefur Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Hollenski bakvörðurinn Tyrell Malacia mun yfirgefa Manchester United þegar samningur hans rennur út í sumar, en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í kvöld.
Malacia er 26 ára gamall og kom til Man Utd frá Feyenoord fyrir fjórum árum.

Hann glímdi við erfið meiðsli á tíma sínum hjá United og aðeins spilað 49 leiki.

Á síðustu leiktíð lék hann seinni hlutann með PSV í Hollandi, en fann sig ekki þar. Hann sneri aftur til United um sumarið og var ekki í myndinni hjá Ruben Amorim fyrr en undir lok ársins.

Malacia hefur haldið sér heilum síðustu mánuði og verið hluti af hópnum, en aðeins spilað fáeinar mínútur í tveimur deildarleikjum.

Man Utd hefur nú staðfest að hann mun yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í sumar.

Liðið heimsækir Brighton í lokaumferðinni um næstu helgi og gæti Malacia mögulega fengið tækifæri til að kveðja þar, en United hefur þegar tryggt sér þriðja sæti deildarinnar og má því alveg búast við einhverjum breytingum hjá Carrick.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.