FRÉTTIR01.04.2026, 09:30
Vítor Hugo Cruz Rocha, eða Pisco, hefur gengið til liðs við ÍBV frá Portúgal. Hann lék áður í Portúgal, hefur spilað á Kýpur og var síðast í Aserbaísjan.
Pisco , sem er 29 ára, spilaði með ÍBV í æfingaferðinni og er portúgalski miðjumaðurinn búinn að samþykkja eins árs samning hjá Bestu deildar liðinu.
Næsti leikur ÍBV verður gegn Þrótti í Mjólkurbikarnum á laugardag.
FRÉTTIR31.03.2026, 21:20
Hollenski varnarmaðurinn Myles Veldman hefur skrifað undir samning við Val. Hann hefur verið á reynslu hjá Hlíðarendafélaginu að undanförnu og vann sér inn samning.
FRÉTTIR31.03.2026, 16:42
Roberto De Zerbi hefur verið tilkynntur sem nýr stjóri Tottenham. Hann skrifar undir fimm ára samning við Lundúnaliðið.
Tottenham lét króatíska stjórann Igor Tudor taka poka sinn í vikunni eftir að hafa verið aðeins 44 daga í starfi. Þar áður hafði Thomas Frank stýrt liðinu.
FRÉTTIR31.03.2026, 16:00
Sigurður Pétur Stefánsson er genginn í raðir Ægis og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Sigurður Pétur skrifar undir samning sem gildir út árið 2027.
Sigurður Pétur kemur frá Kormáki/Hvöt en hann var fyrirliði liðsins. Hann er miðjumaður sem fæddur er 2003 og hefur einnig spilað með Tindastól á sínum ferli.
Hann skoraði tvö mörk á síðasta tímabili, bæði í Fótbolti.net bikarnum. Annað þeirra var sérstaklega glæsilegt og kom í sigri gegn Magna á Grenivík. Hann var á bekknum í <a href="https://www.fotbolti.net/news/20-09-2025/lid-arsins-og-bestu-menn-i-2-deild-karla" target="_blank">liði ársins í 2. deild í fyrra</a> eftir gott tímabil.
FRÉTTIR31.03.2026, 11:17
Þróttur Vogum hefur fengið fjóra leikmenn í sínar raðir fyrir komandi átök í 2. deild karla. Þróttarar rétt misstu af sæti í Lengjudeildinni í fyrra og er Auðun Helgason á leið í sitt annað tímabil með liðinu.
FRÉTTIR31.03.2026, 09:30
Gana er búið að reka Otto Addo úr starfi sem þjálfari landsliðsins 72 dögum fyrir HM í sumar.
Addo er rekinn eftir 2-1 tap gegn Þýskalandi í vináttulandsleik í gær sem kom á eftir 5-1 tapi gegn Austurríki á föstudag. Gana hefur tapaði fjórum leikum í röð og tókst ekki að komast í lokakeppni Afríkumótsins í vetur.
FRÉTTIR31.03.2026, 06:00
Hinn 32 ára gamli Raphael Guerreiro mun yfirgefa herbúðir Bayern Munchen þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar.
FRÉTTIR30.03.2026, 21:10
Lengjudeildarlið Leiknis hefur fengið liðstyrk úr Bestu deildinni en Arnór Valur Ágústsson er genginn til liðs við félagið frá ÍA á láni.
FRÉTTIR30.03.2026, 13:00
Bo Svensson hefur verið ráðinn sem nýr stjóri danska stórliðsins FC Kaupmannahöfn og skrifaði hann undir fimm ára samning við félagið.
Hann tekur við af Jakob Neestrup sem var látinn taka poka sinn í gær eftir dapurt gengi liðsins. Svensson var síðast stjóri Union Berlin árið 2024, en þar áður hafði hann stýrt Mainz.
Kristoffer Wichmann verður hægri hönd Svensson en þeir störfuðu saman hjá Union Berlin.
FRÉTTIR29.03.2026, 19:18
FC Kaupmannahöfn og Jacob Neestrup hafa komist að samkomulagi um að hann hætti sem þjálfari liðsins. Stefan Madsen aðstoðarþjálfari félagsins hættir einnig.
FRÉTTIR29.03.2026, 14:41
Króatíski stjórinn Igor Tudor hefur verið rekinn frá Tottenham Hotspur aðeins rúmum mánuði eftir að hafa tekið við liðinu en þetta kemur fram í tilkynningu Tottenham í dag.
FRÉTTIR28.03.2026, 09:30
Leiknir R. var að krækja í þrjá nýja leikmenn fyrir komandi átök í Lengjudeildinni eftir að liðið forðaði sér frá falli í fyrra.
FRÉTTIR28.03.2026, 09:00
Augnablik er búið að staðfesta tvö félagaskipti til sín frá Breiðabliki þar sem Alekss Kotlevs og Maríus Warén munu leika með liðinu í 3. deildinni í vetur.
FRÉTTIR28.03.2026, 08:30
Völsungur krækti í kanadískan markvörð sem gæti hjálpað liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
FRÉTTIR28.03.2026, 08:00
KÁ var að krækja í afar öflugan liðsstyrk eftir að hafa tekist að sannfæra Jakob Jóhann Veigarsson um að snúa aftur til félagsins.
FRÉTTIR28.03.2026, 07:30
Aldís Ylfa Heimisdóttir hefur ákveðið að láta af störfum sem landsliðsþjálfari U15 landsliðs kvenna og yfirmaður hæfileikamótunar N1 og KSÍ.
FRÉTTIR28.03.2026, 06:00
Gabríel Þór Stefánsson hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari Augnabliks í 3. deild eftir að hafa leikið fyrir félagið og unnið sér inn góðan orðstír við þjálfun í yngri flokkum Breiðabliks.
FRÉTTIR27.03.2026, 18:06
Völsungur var að bæta sænskum miðjumanni við leikmannahópinn hjá sér sem lék síðast með Karlsbergs í þriðju efstu deild í Svíþjóð.
FRÉTTIR27.03.2026, 17:30
Nathan Redmond er genginn í raðir Blackburn og mun spila með liðinu út tímabilið í Championship deildinni.
Redmond var án félags og getur því skipt til Blackburn utan félagaskiptaglugga. George Pratt er einnig kominn inn í 25 manna leikmannahóp félagsins.
FRÉTTIR27.03.2026, 15:00
Eyjamaðurinn Elvis Bwomono er aftur farinn til Skotlands og hefur skrifað undir samning við Aberdeen sem gildir út tímabilið.
Elvis var með lausan samning eftir síðasta tímabil og mátti því semja við Aberdeen utan félagaskiptaglugga. Hann þekkir til í Skotlandi því hann lék með St. Mirren 2023-25.
Hjá Aberdeen hittir Elvis fyrir Kjartan Má Kjartansson sem gekk í raðir skoska félagsins frá Stjörnunni síðasta sumar.