Leiknir R. var að krækja í þrjá nýja leikmenn fyrir komandi átök í Lengjudeildinni eftir að liðið forðaði sér frá falli í fyrra.
Tveir miðverðir eru komnir í Breiðholtið. Annar þeirra er Marko Veselinovic sem er 22 ára gamall og kemur á frjálsri sölu eftir að hafa leikið með Sevlievo í næstefstu deild í Búlgaríu.
Marko gerir eins árs samning alveg eins og hinn 19 ára gamli Davíð Jónsson sem kemur úr röðum Víkings R. og leikur einnig sem hafsent.
Auk þeirra bætist vinstri bakvörðurinn Eiríkur Örn Beck við leikmannahópinn en hann er 19 ára gamall og kemur úr röðum Hauka.
Að lokum hefur Loftur Páll Eiríksson verið ráðinn sem nýr styrktarþjálfari liðsins, en hann lék með Leikni á sínum tíma og þekkir því vel til umhverfisins í Breiðholtinu.
Athugasemdir


