Aldís Ylfa Heimisdóttir hefur ákveðið að láta af störfum sem landsliðsþjálfari U15 landsliðs kvenna og yfirmaður hæfileikamótunar N1 og KSÍ.
Aldís var upprunalega ráðin til KSÍ í janúar 2025 sem landsliðsþjálfari U17 og U16 landsliða kvenna en færðist síðar meir í starfi til að sjá um hæfileikamótunina og U15 landslið kvenna.
Aldís Ylfa mun klára þau verkefni sem fyrir liggja áður en hún lætur af störfum hjá KSÍ.
„KSÍ þakkar Aldísi fyrir ánægjulegt samstarf og óskar henni velfarnaðar í nýjum verkefnum," segir í tilkynningu frá Knattspyrnusambandinu.
Athugasemdir

