Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fös 27. mars 2026 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nathan Redmond í Blackburn (Staðfest)
Redmond hefur spilað með Birmingham, Norwich, Southampton, Besiktas, Burnley, Sheffield Wednesday og nú Blackburn.
Redmond hefur spilað með Birmingham, Norwich, Southampton, Besiktas, Burnley, Sheffield Wednesday og nú Blackburn.
Mynd: Blackburn
Nathan Redmond er genginn í raðir Blackburn og mun spila með liðinu út tímabilið í Championship deildinni.

Redmond var án félags og getur því skipt til Blackburn utan félagaskiptaglugga. George Pratt er einnig kominn inn í 25 manna leikmannahóp félagsins.

Redmond er reynslumikill vængmaður og Pratt kemur inn í leikmannahópinn eftir lánsdvöl. Redmond og Pratt koma inn í hópinn fyrir Sondre Tronstad og Lewis Miller sem glíma við meiðsli.

Redmond er 32 ára og á tæplega 500 leiki að baki á ferlinum. Hann hefur spilað í ensku úrvalsdeildinni, Championship og tykrnesku úrvalsdeildinni. Hann hefur verið án félags eftir að samningur hans við Sheffield Wednesday rann út í lok janúar. Hann lék árið 2017 sinn eina A-landsleik fyrir England.

Sjö leikir eru eftir af tímabilinu og Blackburn er í fallbaráttu.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 42 25 10 7 84 42 +42 85
2 Ipswich Town 41 21 12 8 71 42 +29 75
3 Millwall 42 21 10 11 56 47 +9 73
4 Southampton 42 20 12 10 73 50 +23 72
5 Middlesbrough 42 20 12 10 62 42 +20 72
6 Hull City 42 20 8 14 64 60 +4 68
7 Wrexham 42 17 13 12 63 60 +3 64
8 Derby County 42 18 9 15 61 53 +8 63
9 Norwich 42 17 7 18 55 50 +5 58
10 Bristol City 42 16 10 16 52 51 +1 58
11 QPR 42 16 10 16 58 63 -5 58
12 Watford 42 14 15 13 52 51 +1 57
13 Preston NE 42 14 15 13 50 53 -3 57
14 Swansea 42 16 9 17 50 54 -4 57
15 Birmingham 42 15 11 16 51 52 -1 56
16 Stoke City 42 15 10 17 49 46 +3 55
17 Sheffield Utd 42 16 6 20 59 59 0 54
18 Charlton Athletic 42 12 13 17 39 51 -12 49
19 Portsmouth 42 12 12 18 43 57 -14 48
20 Blackburn 43 12 12 19 38 53 -15 48
21 West Brom 42 11 13 18 42 56 -14 46
22 Oxford United 42 10 14 18 41 54 -13 44
23 Leicester 42 11 14 17 54 64 -10 41
24 Sheff Wed 42 1 11 30 25 82 -57 -4
Slapp
banner